Ég skrapp örstutt á verkstæðið og græjaði siglingaljósin á vængendana. Fyrst sagaði ég sæti fyrir kolfíber rörið sem tekur peruna og límdi það á.
20250302_131818.jpg (140.15 KiB) Skoðað 22075 sinnum
Svo holaði ég innan mjúkan balsakubb þar til hann passaði yfir rörið og límdi hann fastan.
20250302_132230.jpg (144.42 KiB) Skoðað 22075 sinnum
Að kokum skar ég og pússaði allt í burtu sem ekki lítur út eins og festing, og smurði fylliefni á það. Þegar þetta er hart má pússa það slétt. Ég set peruna í áður en ég flýg módelinu
20250302_132852.jpg (131.52 KiB) Skoðað 22075 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég reif niður ræmur af Oratex og festi á rifin, bæði ofan og neðan á báða vængi.
20250305_091056.jpg (140.52 KiB) Skoðað 20303 sinnum
Svo merkti ég fyrir saumunum á límband sem ég lagði við hliðina á ræmunum og gerði saumana með þessu verkfæri. Það eru tvö mismunandi bil, 10 mm á fyrstu tvö og hálft rif, þar sem álag er vegna blásturs frá spaðanum, en 15 mm á öll hin. Þetta tekur dágóðan tíma og mér tókst ekki að gera nema annan vænginn ofaná í morgun. Þetta verk tekur örugglega nokkra daga.
20250305_104140.jpg (132.3 KiB) Skoðað 20303 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég pantaði oddaborða frá Mikka Ref og notaði helminginn af öðrum pakkanum ofan á annan vænginn (passaði akkúrat). Ég þarf líklega að panta fleiri pakkningar af þessu til að klára skrokkinn og hallastýrin.
20250307_095519.jpg (143.48 KiB) Skoðað 17936 sinnum
Ég er enn að setja sauma á hinn vænginn.
20250307_102102.jpg (137.89 KiB) Skoðað 17936 sinnum
Ég er lengi búinn að velta fyrir mér hvort ég ætti að taka balsa stöngina efst í afturglugganum og setja kolfíber rör í staðinn. Í dag sló ég til og gerði það.
20250307_120915.jpg (141.32 KiB) Skoðað 17936 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég kláraði að teikna saumana á seinni vænginn og setja oddaborða á hinn. Það eru nú borðar á öllum rifjum og í kringum ytri brúnir á vængnum. Það sést að ég notaði nýju borðana sem ég fékk og gama, silfurlita borða sem ég átti úr öðru verkefni. Nú vantar mig bara borða til að klára hallastýrið. Þá get ég farið að grunna vænginn og pússa hann smávegis.
20250308_105711.jpg (142.27 KiB) Skoðað 16704 sinnum
Ég klippti til Oratex klæðningu á hægri hliðina á skrokknum. Það var vandaverk að leggja hana á skrokkinn, festa niður og strekkja, en þetta kemur nokkuð vel út.
20250308_124406.jpg (141.35 KiB) Skoðað 16704 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég setti oddaborða á vinstri vænginn, bæði ofan og neðan. Nú á ég ekki fleiri borða og þarf að panta frá Mikka Ref.
Svo ætlaði ég að setja hvítt Oratex á vinstri hliðina, en ég átti ekki nóg, svo ég varð að nota rauðgult. Þetta ætti ekki að gera mikið ógagn, því ég set bæði grunn og silfurmálningu á skrokkinn.
20250310_120614.jpg (137.54 KiB) Skoðað 12540 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég skrapp í Handverkshúsið fyrst ég var að þvælast fyrir sunnan (sonur minn að kvænast) og keypti hjá þeim hálfan annan metra af Lindiré, sem ég ætla að nota í vængstýfurnar. Þegar ég kom aftur norður skellti ég borðinu í bandsögina og sagaði út nokkurn vegin þá lista sem mig vantar.
20250315_171139.jpg (144.19 KiB) Skoðað 4940 sinnum
Svo er bara að hefla þessa lista til í rétt form. Ég byrjaði á því, en það varð fljótt ljóst að blaðið í balsaheflinum er gamalt og bítur illa. Ég þarf að grafa upp nýtt blað og halda svo áfram.
20250317_113617.jpg (144.04 KiB) Skoðað 4940 sinnum
Ég fékk nýja sendingu af oddaborðum frá Mikka Ref og setti þá á alla nuddpunkta á skrokknum. Nú vantar bara borða á annað hallastýrið og stélkambinn. Þá er þetta búið.
20250317_101919.jpg (139.81 KiB) Skoðað 4940 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég setti ný blöð í heflana mína (einn stór og annar lítill) og heflaði svo og pússði rétt form á stýfurnar. Ég náði ekki að klára þá síðustu áður en ég fór heim í mat. Hér eru tvær tilbúnar og tvær undirbúnar.
20250318_104524.jpg (143.8 KiB) Skoðað 3159 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.