Ég skrapp örstutt á verkstæðið og græjaði siglingaljósin á vængendana. Fyrst sagaði ég sæti fyrir kolfíber rörið sem tekur peruna og límdi það á.
20250302_131818.jpg (140.15 KiB) Skoðað 12915 sinnum
Svo holaði ég innan mjúkan balsakubb þar til hann passaði yfir rörið og límdi hann fastan.
20250302_132230.jpg (144.42 KiB) Skoðað 12915 sinnum
Að kokum skar ég og pússaði allt í burtu sem ekki lítur út eins og festing, og smurði fylliefni á það. Þegar þetta er hart má pússa það slétt. Ég set peruna í áður en ég flýg módelinu
20250302_132852.jpg (131.52 KiB) Skoðað 12915 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég reif niður ræmur af Oratex og festi á rifin, bæði ofan og neðan á báða vængi.
20250305_091056.jpg (140.52 KiB) Skoðað 11143 sinnum
Svo merkti ég fyrir saumunum á límband sem ég lagði við hliðina á ræmunum og gerði saumana með þessu verkfæri. Það eru tvö mismunandi bil, 10 mm á fyrstu tvö og hálft rif, þar sem álag er vegna blásturs frá spaðanum, en 15 mm á öll hin. Þetta tekur dágóðan tíma og mér tókst ekki að gera nema annan vænginn ofaná í morgun. Þetta verk tekur örugglega nokkra daga.
20250305_104140.jpg (132.3 KiB) Skoðað 11143 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég pantaði oddaborða frá Mikka Ref og notaði helminginn af öðrum pakkanum ofan á annan vænginn (passaði akkúrat). Ég þarf líklega að panta fleiri pakkningar af þessu til að klára skrokkinn og hallastýrin.
20250307_095519.jpg (143.48 KiB) Skoðað 8776 sinnum
Ég er enn að setja sauma á hinn vænginn.
20250307_102102.jpg (137.89 KiB) Skoðað 8776 sinnum
Ég er lengi búinn að velta fyrir mér hvort ég ætti að taka balsa stöngina efst í afturglugganum og setja kolfíber rör í staðinn. Í dag sló ég til og gerði það.
20250307_120915.jpg (141.32 KiB) Skoðað 8776 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég kláraði að teikna saumana á seinni vænginn og setja oddaborða á hinn. Það eru nú borðar á öllum rifjum og í kringum ytri brúnir á vængnum. Það sést að ég notaði nýju borðana sem ég fékk og gama, silfurlita borða sem ég átti úr öðru verkefni. Nú vantar mig bara borða til að klára hallastýrið. Þá get ég farið að grunna vænginn og pússa hann smávegis.
20250308_105711.jpg (142.27 KiB) Skoðað 7544 sinnum
Ég klippti til Oratex klæðningu á hægri hliðina á skrokknum. Það var vandaverk að leggja hana á skrokkinn, festa niður og strekkja, en þetta kemur nokkuð vel út.
20250308_124406.jpg (141.35 KiB) Skoðað 7544 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég setti oddaborða á vinstri vænginn, bæði ofan og neðan. Nú á ég ekki fleiri borða og þarf að panta frá Mikka Ref.
Svo ætlaði ég að setja hvítt Oratex á vinstri hliðina, en ég átti ekki nóg, svo ég varð að nota rauðgult. Þetta ætti ekki að gera mikið ógagn, því ég set bæði grunn og silfurmálningu á skrokkinn.
20250310_120614.jpg (137.54 KiB) Skoðað 3380 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.