Þegar grunnurinn var að mestu farinn sprautaði ég meiri grunni og setti svo fylliefni í allar misfellur. Þegar þær þornuðu pússaði ég þær sléttar. Svo setti ég sex lög af límbandi þar sem ég vil hafa áberandi plötuskil. Svo smurði ég þykku lagi af fylliefni að límböndunum. Þetta þarf að fá að harðna almennilega. Ég reyni að pússa þetta á morgun.
20250506_105938.jpg (143.58 KiB) Skoðað 225 sinnum
Síðast breytt af Gaui þann 9. Maí. 2025 16:03:16, breytt 1 sinni.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Hér er ég búinn að pússa og grunna plötukanntinn á vélrhlífinni.
20250507_091612.jpg (136.5 KiB) Skoðað 197 sinnum
Það eru loftop framan á hlífinni. Ég skar út umgjörðina úr áli og límdi á sinn stað eftir að hafa opnað götin. Þetta lítur smávegis út fyrir að vera Járnkallinn Toný Stark.
20250507_101255.jpg (131.58 KiB) Skoðað 197 sinnum
Og svo setti ég nokkur hnoð á flapana. Þetta er ekki algerlega nauðsynlegt, en þau voru þarna og því þarf ég að bæta þeim við.
20250507_104947.jpg (140.82 KiB) Skoðað 197 sinnum
Síðast breytt af Gaui þann 9. Maí. 2025 16:03:28, breytt 1 sinni.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Morguninn fór í að búa til máta fyrir framrúðuna. Ég notaði stíft plast sem ég klipti til og límdi saman með límbandi til að fá það form sem þarf. Ég held að þetta hafi tekist ágætlega.
20250509_104517.jpg (142.36 KiB) Skoðað 169 sinnum
Áður en ég lími rúðuna í þurfti ég að búa til hallastýris trissurnar sem eru í frambrún vængsins og vírinn sem liggur ofan í mælaborðið.
20250509_115625.jpg (137.57 KiB) Skoðað 169 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég límdi gluggana í hurðarnar í morgun. Þetta tók sæmilegan tíma: mæla stærðina, skera rúðurnar út og líma þær í. Það eru tvær rúður í hvorri hurð og það var hægt að renna þeim fram og aftur, en ég ætla bara að hafa þær fastar.
20250510_094348.jpg (137.2 KiB) Skoðað 134 sinnum
Svo dundaði ég mér við að líma flapann á vinstri vænginn. Þetta er heilmikið vesen og ég þurfti að hafa servóin tengd við móttakarann á meðan og sendinn í gangi svo flapinn gæti dottið á réttan stað.
20250510_114217.jpg (141.6 KiB) Skoðað 134 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Allur morguninn fór í að búa til festingar fyrir stélstögin og setja þau svo saman með göfflum frá Mikka Ref og 1,5mm stálvírum sem ég silfursauð á. Gafflarnir frá Mikka eru snittaðir sitt á hvað, þannig að báðir herðast í eða losna ef maður snýr staginu.
20250513_103843.jpg (138.39 KiB) Skoðað 55 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég föndraði saman börurnar sem sjúklingurinn kemur til með að "liggja" í. Þær eru gerðar úr krossviði og balsa og vega nánast ekkert.
20250514_112219.jpg (137.73 KiB) Skoðað 29 sinnum
Ég er búinn að brjóta heilann um hvar ég ætti að setja rofana og datt niður á það í dag að setja þá í lokið yfir (undir) servóunum. Það er nóg pláss fyrir þá og þetta er eini staðurinn þar sem er hart yfirborð á skrokknum og þeir sjást ekki þegar módelið stendur upprétt.
20250514_115942.jpg (139.48 KiB) Skoðað 29 sinnum
Hér sést inn í flugklefann og sætin og börurnar skyggja á servóin og rofana. Rafhlöðurnar komast fyrir undir framsætinu eða mælaborðinu.
20250514_120152.jpg (143.25 KiB) Skoðað 29 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.