Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3887
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 112

Ég notaði breitt límband til að gera skapalón af rúðunum sem koma fyrir aftan hurðirnar. Það er síðan límt á plastið og skorið út og formað þar til það passar nákvæmlega.
20250612_113239.jpg
20250612_113239.jpg (142.84 KiB) Skoðað 187 sinnum
Hér eru rúðurnar komnar í og límdar með rúðulími. Það tekur yfirleitt nokkra klukkutíma að þorna, svo ekkert fleira verður gert fyrr en á morgun.
20250612_115018.jpg
20250612_115018.jpg (138.89 KiB) Skoðað 187 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3887
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 113

Ég skar 9mm breiðar ræmur úr áli og festi á gluggann þar sem hægt er. Ég notaði tvöfalt límband til að halda ræmunum á meðan ég boraði 0,6mm (og svo 0,8mm þegar borinn brotnaði), undirsinkaði með 2,2mm bor og skrúfaði svo agnar smáar skrúfur frá Mikka Ref.
20250614_093538.jpg
20250614_093538.jpg (142.38 KiB) Skoðað 150 sinnum
Hér sést hvernig þetta lítur út. Ég prentaði Slysavarnarfélagsmerkið á venjulegan pappír á meðan ég bíð eftir vantsmerkispappírnum frá útlöndum. Stærðin virðist nokkuð góð, en það sést ekki alveg á meðan svörtu línurnar vantar.
20250614_110441.jpg
20250614_110441.jpg (140.51 KiB) Skoðað 150 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3887
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 114

Losaði alla aukahluti af skrokknum og penslaði svo parkettlakki á alla fleti.
20250616_094847.jpg
20250616_094847.jpg (137.49 KiB) Skoðað 115 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3887
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 115

Ég dúllaði mér við hægri vænginn og límdi flapsann og hallastýrið á. Ég þarf að fara að huga að skráningarstöfunum undir vænginn og á skrokkhliðarnar. Þeir eru tvílitir, svartir og grænir og ég þarf að finna góðan grænan lit á þetta.
20250618_110846.jpg
20250618_110846.jpg (143.39 KiB) Skoðað 92 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3887
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 116

Ég límdi sætin föst. Nú bíð ég eftir flugmanni frá Premier Pilots. Ég á einhvers staðar kvartskala kall í lopapeysu með Williams brothers haus, sem tekur að sér að vera sjúklingurinn. Ég þarf bara að finna hann.
20250619_112902.jpg
20250619_112902.jpg (141.75 KiB) Skoðað 58 sinnum
Setti saman inngjöf sem ég festi undir mælaborðið. Hugsanlega geri ég annað eintak ef ég kemst í 3-D prentara einhvers staðar.
20250620_101903.jpg
20250620_101903.jpg (142.32 KiB) Skoðað 58 sinnum
Ég uppgötvaði að flapaservóið var ekki rétt sett saman, svo ég þurfti að skera klæðninguna frá og redda málinu.
20250620_113955.jpg
20250620_113955.jpg (144.22 KiB) Skoðað 58 sinnum
Ég prentaði út skráningarstafina sem eiga að koma undir vænginn og bar þá við. Þeir eiga að vera svartir og grænir. Nú er bara spurning hvært verður málað fyrst, græna útlínan eða svarti aðal liturinn. (já, ég þurfti að rífa klæðninguna af flapsanum -- það verður lítið mál að klæða hann aftur)
20250620_114134.jpg
20250620_114134.jpg (142.5 KiB) Skoðað 58 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3887
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 117

Ég setti nýja klæðningu á flapann, lokaði bilinu sem flapaservóið er í og sprautaði þetta silfur.
20250621_110511.jpg
20250621_110511.jpg (138.38 KiB) Skoðað 28 sinnum
Svo notaði ég tækifærið og setti leiðsöguljós á báða vængenda, rautt vinstra megin og blátt hægra megin. "Á það ekki að vera grænt?" heyri ég spurt, og svarið er, þegar gul pera logar bakvið blátt gler sést grænt.
vaengljos.jpg
vaengljos.jpg (130.99 KiB) Skoðað 28 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara