VP-1 Volksplane TF-KEA

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Gaui
Póstar: 3917
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: VP-1 Volksplane TF-KEA

Póstur eftir Gaui »

Ég er með nokkrar 3mm balsaplötur sem eru 9140mm langar (36 tommur) og ég næ þrem rifjum út úr hverri. Ég merkti á plöturnar, skar út blanka sem eru aðeins stærri um sig en rifin, stafla þeim saman með teppalímbandi og merki á þá útlínur rifjann. Þetta er svo sagað út, pússað rétt og svo tekið í sundur.
20250805_101755.jpg
20250805_101755.jpg (133.9 KiB) Skoðað 200 sinnum
Það tók mig allan morguninn að búa til um 20 rif. Á morgun bý ég til hin sextán sem mig vantar. Svo þegar SLEC sendir mér grenilista í vængbitana, þá máta ég hvert rif fyrir sig uppá þá.
20250805_113357.jpg
20250805_113357.jpg (141.44 KiB) Skoðað 200 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3917
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: VP-1 Volksplane TF-KEA

Póstur eftir Gaui »

Búinn að saga niður öll vængrif. Nú vantar mig bara vængbitana til að geta byrjað að raða vængjunum saman. Þetta er alver sæmilegur bunki.
20250806_101413.jpg
20250806_101413.jpg (139.33 KiB) Skoðað 189 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3917
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: VP-1 Volksplane TF-KEA

Póstur eftir Gaui »

Ég notaði morguninn til að búa til festingar fyrir vængina úr 5mm áli (Volvo stuðara) og 0,8mm koparþynnu. Það gekk mjög vel að klippa út koparþynnurnar, forma þær til og bora göt, en þegar ég reyndi að skera út álið með Proxxon fræsaranum mínum, þá sprakk hann í höndunum á mér, rafmagnið fór af verkstæðinu og dularfulli blái reykurinn slapp út. Ég þarf að fá mér nýjan fræsara.
20250807_112705.jpg
20250807_112705.jpg (143.55 KiB) Skoðað 159 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3917
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: VP-1 Volksplane TF-KEA

Póstur eftir Gaui »

I dag snittaði ég í álfestingarnar með M4 snitti og setti M4 bolta sem koma til með að halda efri hluta vængstífanna í skrokknum. Svo lóðaði ég M4 rær á koparfestingarnar. Það verður aðgangur innan í flugklefanum til að festa vængina á með M4 boltum í gegnum skrokkrif F2 og F3.
20250808_110116.jpg
20250808_110116.jpg (142.22 KiB) Skoðað 140 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3917
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: VP-1 Volksplane TF-KEA

Póstur eftir Gaui »

Morguninn fór í það að kaupa járnsög og saga með henni tólf álfestingar í viðbót.
20250811_101434.jpg
20250811_101434.jpg (143.83 KiB) Skoðað 86 sinnum
Það þarf, nefnilega, 8 pör af þessum festingum. Ég bora göt og rúnna annan endann á morgun. Það þarf líka að snitta fyrir M4 bolta í tvo þeirra.
20250811_120744.jpg
20250811_120744.jpg (140.52 KiB) Skoðað 86 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3917
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: VP-1 Volksplane TF-KEA

Póstur eftir Gaui »

Eg lauk við að útbúa festingarnar fyrir vænginn og stífurnar á skrokkrifin. Nú vantar mig bara harðviðarsendinguna frá SLEC.
20250812_113721.jpg
20250812_113721.jpg (133.9 KiB) Skoðað 34 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara