Ég er með nokkrar 3mm balsaplötur sem eru 9140mm langar (36 tommur) og ég næ þrem rifjum út úr hverri. Ég merkti á plöturnar, skar út blanka sem eru aðeins stærri um sig en rifin, stafla þeim saman með teppalímbandi og merki á þá útlínur rifjann. Þetta er svo sagað út, pússað rétt og svo tekið í sundur.
20250805_101755.jpg (133.9 KiB) Skoðað 174 sinnum
Það tók mig allan morguninn að búa til um 20 rif. Á morgun bý ég til hin sextán sem mig vantar. Svo þegar SLEC sendir mér grenilista í vængbitana, þá máta ég hvert rif fyrir sig uppá þá.
20250805_113357.jpg (141.44 KiB) Skoðað 174 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég notaði morguninn til að búa til festingar fyrir vængina úr 5mm áli (Volvo stuðara) og 0,8mm koparþynnu. Það gekk mjög vel að klippa út koparþynnurnar, forma þær til og bora göt, en þegar ég reyndi að skera út álið með Proxxon fræsaranum mínum, þá sprakk hann í höndunum á mér, rafmagnið fór af verkstæðinu og dularfulli blái reykurinn slapp út. Ég þarf að fá mér nýjan fræsara.
20250807_112705.jpg (143.55 KiB) Skoðað 133 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
I dag snittaði ég í álfestingarnar með M4 snitti og setti M4 bolta sem koma til með að halda efri hluta vængstífanna í skrokknum. Svo lóðaði ég M4 rær á koparfestingarnar. Það verður aðgangur innan í flugklefanum til að festa vængina á með M4 boltum í gegnum skrokkrif F2 og F3.
20250808_110116.jpg (142.22 KiB) Skoðað 114 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.