19.03.2007 - Gjafamál, vefsíðumál og atburðir

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 19.03.2007 - Gjafamál, vefsíðumál og atburðir

Póstur eftir Sverrir »

Hvað er hægt að gefa flugáhugamanni að gjöf? Hvað með drykkjarborð sem er búið til úr æfingasprengju úr seinni heimsstyrjöld og hluta af B-52 mótor? Nú eða barborð sem er búið til úr Mk-84 sprengju. Eða borð búið til úr nafarhlíf af C-133. Hægt er að líta við á http://www.motoart.com/ til að sjá fleiri gripi. Það er kannski ekki hægt að segja að þetta séu ódýrar gjafir þar sem verðmiðarnar byrja oftast í 4 stafa dollaratölu.

Flugmódelfélag Suðurnesja hefur sett nýja útgáfa af vefsíðu sinni í loftið og eins og endranær má nálgast hana á vefslóðinni, http://www.modelflug.net/.

Einnig er rétt að benda á að nú eru byrjaðar að koma tilkynningar um atburði sumarsins og er hægt að sjá það sem er komið inn á http://frettavefur.net/atburdir/.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: 19.03.2007 - Gjafamál, vefsíðumál og atburðir

Póstur eftir kip »

Til hamingju með nýja lookið á modelflug.net stórglæsilegt og gaman að sjá að fleiri nota Wordpress kerfið en við www.flugmodel.is
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 19.03.2007 - Gjafamál, vefsíðumál og atburðir

Póstur eftir Sverrir »

Fínt kerfi, sjá einnig > www.thytur.is ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3855
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: 19.03.2007 - Gjafamál, vefsíðumál og atburðir

Póstur eftir Gaui »

Það er nú alveg komið að því að uppfæra efnið á Þyts síðunni, er það ekki?
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Ingþór
Póstar: 596
Skráður: 4. Feb. 2005 00:42:21

Re: 19.03.2007 - Gjafamál, vefsíðumál og atburðir

Póstur eftir Ingþór »

jú, vantar sárlega upplýsingar td. um hverjir voru kjörnir á aðalfundi og mótaskrá fyrir komandi sumar
- - Þegar þú flýgur á hvolfi er niður upp og upp kostar pening - -
- TT Raptor 90 - TT Raptor 50 - WestonUK MagnumR - SimProp Solution -
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: 19.03.2007 - Gjafamál, vefsíðumál og atburðir

Póstur eftir Offi »

Ný síða er í vinnslu og kemst í gagnið á næstunni. Verið þolinmóðir, bræður! Við skulum sjá hvort ekki detti inn stuttar tilkynningar gömlu síðuna á næstunni.
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: 19.03.2007 - Gjafamál, vefsíðumál og atburðir

Póstur eftir Sverrir »

Það má nú benda á það að upplýsingar um nýja stjórn hefur mátt finna á Þytssíðunni frá því 2 dögum eftir (framhalds)aðalfund.

En eins og áður segir þá er Offi með málin undir öruggri stjórn :)
Icelandic Volcano Yeti
Svara