Flugvikan

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugvikan

Póstur eftir Sverrir »

Jæja, komin fjögur flughæf kvöld í vikunni. Skyldi fimmta bætast við á morgun?

Hafa menn verið duglegir að fara út á flugvöll í vikunni?
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Guðni
Póstar: 384
Skráður: 17. Jan. 2006 18:09:00

Re: Flugvikan

Póstur eftir Guðni »

Sæll Sverrir..
Heldur betur...síðustu 3 dagar lágu kaldir....
en myndavélin var eftir heima..svo það eru engin sönnunargögn til staðar.. :)
Ég var búinn að gleyma því hvað þetta getur verið gaman..það hefur liðið of langt á milli...

Kveðja Guðni Sig.
If it's working...don't fix it...
Passamynd
Spitfire
Póstar: 412
Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01

Re: Flugvikan

Póstur eftir Spitfire »

Tvö frábær kvöld, jómfrúarflug bæði vélar og eiganda innifalið :cool:

Lítur ekki vel út í dag, SV bræla og rigning, bara að muna eftir að fórna feitum lambskrokk á altari veðurguðanna svo þeir haldist góðir yfir páskana. :D
Hrannar Gestsson, Patreksfirði

The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Flugvikan

Póstur eftir Agust »

Hér á Haukadalsflugvelli er myrkur, rok og rigning þegar þetta er ritað. Hvað er til ráða?
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Ingþór
Póstar: 596
Skráður: 4. Feb. 2005 00:42:21

Re: Flugvikan

Póstur eftir Ingþór »

Áður en menn fara í simmann þá mæli ég með því að menn fara bara í huglæa æfingu, reyna að sjá fyrir sér hvað menn vilja gera og ímynda sér hvað þeir geri til að framkvæma það.... það er allavega þannig sem ég hef náð mínum árangri (hver svo sem hann er)
tildæmis ef þið eruð farþegar í bíl (já eða strætó) ímyndið ykkur að þið séuð að fljúga flugvél eða þyrlu fyrir framan. Ég mæli ekki með þessari tækni fyrir bílstjóra!
Já eða bara gera vélina vatnsþétta og drífa sig út í rokið, hættum að væla yfir veðri og fljúgum bara ;) já eða ekki :P
- - Þegar þú flýgur á hvolfi er niður upp og upp kostar pening - -
- TT Raptor 90 - TT Raptor 50 - WestonUK MagnumR - SimProp Solution -
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flugvikan

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Ingþór]Áður en menn fara í simmann þá mæli ég með því að menn fara bara í huglæa æfingu, reyna að sjá fyrir sér hvað menn vilja gera og ímynda sér hvað þeir geri til að framkvæma það....[/quote]
Ekki bara simmanum, líka í "ðö ríl þíng" eins og sagt er að Grísará...
Það er svakalega hollt að gera "flugáætlun", ekki bara taka á loft og sjá svo til hvert stefnir.
Maður fær miklu meira út úr flugtúrnum ef maður er búinn að ákveða fyrirfram hvað maður ætlar að æfa og hvernig og fylgja því svo vandlega. Listflug gengur jú út á að fljúga eftir forskrift og... ættum við ekki alltaf að fljúga listflug??? eða hvað :)

Gleðilegan sunnudag. Ég verð í vinnunni :mad:
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Svara