Höddi, þetta getur alveg verið JR kristall, en þetta er rásanúmer, (Channel number) þá hleypur hver rás á 0,010 mhz víða notað frekar en tíðnin.
Ég myndi prófa hvort hann virki ekki örugglega hjá þér, það á ekki að leyna sér um hvort merkið er að ræða...
Ég dró kristalinn innan úr plastinu og á honum stendur 35-140 svo að tíðnin er rétt en það er samt engin svörun, þess vegna datt mér í hug að þetta væri FUTABA en það er nú vaninn að það virki ekki ........hehehe
Hér dettur inn sérviskan í okkur íslendingum: við notum tíðnitölur á meðan allir aðrir (og ég meina ALLIR aðrir) nota rásanúmer. Tíðnin 35,140 er rás númer 74.
Við ættum að fara að breyta þessu, það er pínlegt þegar maður kemur til útlanda og veit ekki hvaða rás maður er með og viðmælendur vita ekki hvað tíðnin er.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
ég held að það sé nokkuð til í þessu sem Gaui segir, þetta er líka einfaldara og því minni hætta á mistökum (vonandi) og tíðni slysum. Samráðsnefndin þyrfti að skoða þessi mál ásamt öllum hinum...
En varðandi þín mál Höddi, þá er það líkleg skýring úr því sem komið er að þetta sé röng gerð.
Í aðalatriðum eru til tvær gerðir kristalla fyrir viðtæki, þ.e. fyrir single conversion og dual converstion viðtæki (betra). Eftir því sem ég best veit kann JR ekki að smíða dual conversion viðtæki.