Lekavandamál

Kanntu brögð og brellur sem fleiri hafa gagn af?
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3656
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Lekavandamál

Póstur eftir Gaui »

Mér datt í hug að reyna að þýða smá grein úr þýska blaðinu Modell bæði vegna þess að þetta er gott ráð og til að þjálfa mig aðeins í þýskunni minni.

Mynd

Lítið vandamál, stór lausn

Lesandi okkar, Edwald Thiele er ekki óvanur að koma fram með snilldarlausnir á vandamálum. Í Modell 7/2004 sýndi hann okkur öryggisrofa fyrir loftknúin hjólastell. Nú sýnir hann okkur hvernig hægt er að koma í veg fyrir gat á eldsneytisslöngum sem er er svo einfalt að allir tauta: af hverju datt mér þetta ekki í hug sjálfum?

Síðastliðna helgi bað félagi minn mig um að hjálpa sér að stilla mótorinn sinn. Hann furðaði sig á því að mótorinn þurfti allt í einu allt aðrar stillingar en nokkrum dögum fyrr. Það var mjög augljóst að það var nær útilokað að ná góðum hraðagangi í mótorinn. Orsökin kom fljótt í ljós. Röð af loftbólum komu eftir slöngunni í blöndunginn sem skýrðu hvers vegna mótorinn gekk svona illa. Þegar að var gáð kom í ljós gat á slöngunni þar sem hún lá uppá nippilinn í tankinn. Gatið hafði komið þó nippillinn hafi verið sléttur og fínn. Ég hafði orðið fyrir sams konar vanda um ári áður og hafði lausn á honum tilbúna.

Fyrir slöngur sem eru um það bil 4,5 mm að utanmáli notar maður bút af koparröri sem er 5mm að innanmáli og 6mm að utanmáli og er alltaf til í vel reknum módelbúðum. Maður sker af bút sem er um 5mm lengri en nippillinn á tanknum. Maður hreinsar endana á rörbútnum vandlega og síðan rekur maður einhvern kónískan hlut með hamri inn í báða enda bútsins þannig að þeir þenjast örlítið út eins og framendinn á lúðri. Ef slangan þarf að fara í boga strax frá tanknum, þá gerir maður þennan lúður stærri en annars.

Eftir þetta fer maður með þjöl eða samanvöðlaðan sandpappír inní rörið til að það sé engin hætta á að að það særi slönguna. Nú er rörið sett uppá slönguna og síðan þröngvað uppá nippilinn. Lúðurinn á rörinu verður að vera það stór að slangan komi ekki við brúnirnar á honum. Nú munu enginn titringur hafa áhrif á slönguna.

Mynd

1 gat á slöngunni hleypir lofti inn með eldsneytinu og kemur í veg fyrir að mótorinn gangi eðlilega.

Mynd

2 Stuttur bútur af koparröri með útþanda enda er galdralausnin.

Mynd

3 Rörið er sett uppá nippilinn með slöngunni. Rörið á að vera 5mm lengra en nippillinn.

Mynd

4 Endinn þar sem slangan kemur út á að vera meira þaninn en hinn.

Mynd
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Pétur Hjálmars
Póstar: 219
Skráður: 5. Mar. 2005 02:23:49

Re: Lekavandamál

Póstur eftir Pétur Hjálmars »

Mér finnst á degi "BUNCE OF MONEY " að menn getin komið fram undir eigin nafni eins og """""
grein eftir GAUJA" ekki Gui eða eitthvað annað eða grein eftir "SVERRIR" heldur í stað : grein eftir "Sverri "
Þetta er eins og fara til LÆKNIRINS "
.. en ekki til LÆKNISINS".

Bestu Jónasarkveðjur
Pétur Hj.
Pétur Hjálmars
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11463
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Lekavandamál

Póstur eftir Sverrir »

Ég hef reynt það en mér hefur ekki enn tekist að kenna vefþjóninum íslensku svo vel sé ;)

Hver veit nema það takist einn daginn :)



Annars hefði verið nær að stofna nýja þráð til að ræða þetta. Laga það við tækifæri.
Icelandic Volcano Yeti
Svara