Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Ég er farinn til Kanada að ná í vélina hans Tom sem var að koma úr sprautun. Hann tekur örugglega ekki eftir því þó ég víxli þeim... :rolleyes:

Mynd

Mynd

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir einarak »

ég mundi halda mig við upprunalega skímið, þetta spidergirl skím er full Eurovisionískt...
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Þar sem síðasta helgi fór öll í flug þá var ekkert annað að gera en bíta á jaxlinn og skella sér í smíðar um þessa helgi. ;)
Hérna sést Weatronic græjan góða. Helstu tölur; tveir 12 rása synthískir móttakarar, 4 spennujafnarar, 2 rafhlöðutengi, 20 útgangar fyrir servó, minniskortarauf, gýró, þyngd ca. 170 grömm. Svo er hægt að fá „stærri“ útgáfur með GPS, öðru gýrói, og 26 útgöngum fyrir servó. Hún ræður hvort heldur við JR eða Futaba PCM/PPM merki. Áhugasamir geta kynnt sér græjuna nánar hér.

Weatronic græjan, kóktappi hafður með svo menn geri sér betur grein fyrir stærðinni.
Mynd

Einhvers staðar á þessum slóðum verður hún uppsett.
Mynd

USB tengið var sett undir falska gólfið.
Mynd

Voila!
Mynd

Rofinn er fjarlægður til að kveikja á græjunni, gaumljósið sýnir hvor rafhlöðupakkinn er í notkun.
Mynd

Hér þarf að hafa rafhlöðupakkana til að ná vélinni í jafnvægi, hin er beint undir þessum.
Mynd

Svona til gamans þá er hérna mynd sem sýnir hvað tæki og tól myndi þurfa til að fá álíka fjölhæft viðmót, ef menn vilja vera mjög nákvæmir þá má bæta einu multiboxi og gps móttakara við þessa mynd og þá förum við að nálgast Weatronic í virkni. ;)
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir einarak »

já... SÆÆLLLL!
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir kip »

Er þetta orðið flóknara rafkerfi en í fullscale, endar með því
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Passamynd
Steinar
Póstar: 180
Skráður: 8. Jan. 2006 22:47:28

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Steinar »

Pottþétt flóknara... Rafkerfi í fullskala er ekki flókið.. amk engin USB tengi. :D
Always remember you fly an airplane with your head, not your hands.
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Ætli rafkerfið í þessari 4 sæta rellu toppi Weatronic ekki nokkrum sinnum en þeir fá samt ekki USB tengi ;)

Mynd

Enda er það vitað mál að eftir nokkur ár þá verður bara einn flugmaður og hundur í stjórnklefa farþegaflugvéla!
Flugmaðurinn verður þarna til að gefa hundinum að borða og hundurinn verður þarna til að bíta flugmanninn ef hann reynir að fikta í flugtölvunni :)


Annars ef menn vilja bíða fram í ágúst þá ætlar Weatronic að kynna 2.4GHz útgáfu og sendamódúla um það leyti.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Steinar
Póstar: 180
Skráður: 8. Jan. 2006 22:47:28

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Steinar »

Ég var sko að hugsa um svona rellu, Weatronic toppar þessa amk. :)

Mynd
Always remember you fly an airplane with your head, not your hands.
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Held að farsímar hjá mörgum í dag toppi þessa ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir kip »

Þú ert ekki með farsíma í Katana frá Krill :P
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Svara