Síða 2 af 3

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 7. Apr. 2022 16:44:27
eftir Gaui
kannski ekki

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 31. Maí. 2022 12:54:15
eftir Gaui
Loksins smá aðgerðir:



Njótið

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 10. Jún. 2022 15:37:07
eftir Gaui
Bara stutt í þetta sinn: efri vængurinn að mestu tilbúinn.



Njótið.

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 18. Jún. 2022 15:25:56
eftir Gaui
Áfram er haldið, og hér eru vængirnir að nálgast fullkomnun.



Njótið.

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 8. Nóv. 2022 12:29:35
eftir Gaui
Ég fann loftinntakið fyrir mælaborðið á RC Scale Builder og datt í hug að prófa hvort þetta gæti gengið:

Hérna er þrívíddarprentarinn á FabLab að prenta lúðurinn:
01.jpg
01.jpg (113.34 KiB) Skoðað 3926 sinnum
Og hann lítur svona út eftir prentun. Alls konar stoðvefir utan á lúðrinum sem halda honum uppréttum á meðan prentun fer fram.
02.jpg
02.jpg (140.91 KiB) Skoðað 3926 sinnum
Hér er ég búinn að losa stoðvefinn frá.
03.jpg
03.jpg (136.36 KiB) Skoðað 3926 sinnum
Þá lítur lúðurinn svona út. Nú væri hægt að pússa og setja fylliefni, en ég held það sé ekki alveg nauðsynlegt.
04.jpg
04.jpg (125.18 KiB) Skoðað 3926 sinnum
Grunnur til að málningin tolli á.
05.jpg
05.jpg (151.57 KiB) Skoðað 3926 sinnum
Og svo svört módelmálning. Hugsanlega set ég glært ofaná, en er enn að hugsa um það.
06.jpg
06.jpg (138.49 KiB) Skoðað 3926 sinnum
Hér er lúðurinn borinn að skrokkhiðinni: Passar!
07.jpg
07.jpg (143.58 KiB) Skoðað 3926 sinnum
Hér er frumritið.
3866.jpg
3866.jpg (121.27 KiB) Skoðað 3926 sinnum
gaui

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 9. Nóv. 2022 10:37:29
eftir Sverrir
Algjörir leikbreytar þessir 3D prentarar, næst er bara að læra á CAD og þá þarf ekki einu sinni að finna hlutina!

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 11. Nóv. 2022 09:35:31
eftir einarak
Þetta er brill, alltaf gaman að fylgjast með brasinu þínu Gaui

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 3. Sep. 2024 11:56:34
eftir Gaui
Það eru næstum tvö ár síðan ég gerði eitthvað við Gamlingjann, og þar sem Frúin er nánast búin fyrir utan vélarhlífina, þá datt mér í hug að fikta við hann smá. Ég setti vængstífurnar á, batt þær og lóðaði og límdi svo balsastangir utaná þær. Nú má þetta harðna og svo pússa ég það til á morgun.
20240903_112214.jpg
20240903_112214.jpg (133.58 KiB) Skoðað 1610 sinnum
8-)

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 10. Sep. 2024 13:06:08
eftir Gaui
Það eru komnar vængstífur á Stampe ásamt flug- og lendingarvírum. Vírarnir eru ekkert sérlega mikilvægir af því vængirnir eru mikið til sjálfberandi, en leiðbeiningarnar segja að ef maður er með stóran mótor (NGH 35 í mínu tilfelli) þá er betra að hafa þá.
20240910_121729.jpg
20240910_121729.jpg (130.78 KiB) Skoðað 1363 sinnum
8-)

Re: Stampe et Vertongen á Dalvík

Póstað: 23. Sep. 2024 12:19:46
eftir Gaui
Nú er allur Stampurinn kominn með eina til tvær þunnar umferðir af hvítri málningu. Það var kyrrt veður í morgun, en svo kalt að ég þurfti að vera með vinnuvetlinga og hlaupa inn og út með stykkin sem ég sprautaði.
20240923_113811.jpg
20240923_113811.jpg (137.97 KiB) Skoðað 937 sinnum
8-)