[quote=Gaui]Gunni Binni og aðrir
Það er ekki ætlun mín að vera vondur við ykkur, það sem ég vil fá ykkur til að gera er að hugsa um hagsmuni módelsportsins í heild. Ég hef í sjálfu sér ekki miklar áhyggjur af fisléttum parkflæjerum, jafnvel þó þeim sé flogið í myrkri.
Það sem ég hef áhyggjur af er þegar verið er að fljúga flugmódelum, sumum jafnvel nokkuð stórum, innanbæjar. Það hefur verið gert, bæði hér fyrir norðan og á höfuðborgarsvæðinu. Sem betur fer hefur það ekki orsakað neinn skaða eða líkamstjón -- ennþá.
Þess vegna segi ég: fljúgum bara á flugvöllunum okkar. Við skulum ekki fljúga parkflæjerum á Klambratúni eða öðrum grænum svæðum innan bæjar, bara vegna þess að það er gert í útlandinu. Þegar tjón verður, þá verður ekki spurt að stærð módelsins. Þá verður bara talað um flugmódel.[/quote]
Blessaður Gaui.
Ég er að sumu leiti sammála þér, að mest af þessu flugi á heima á flugvellinum eða amk í dreifbýli. Ástæða þess að ég er í flugmódelfélögum er: skemmtilegur félagsskapur, hjálpsamir menn (eins og þú og fleiri sem gefa góð ráð og aðstoða gjarnan), aðgangur að aðstöðu og síðast en ekki síst tryggingarnar ef eitthvað kæmi fyrir þegar maður flýgur stærri og varasamari vélum.
Og þó maður vilji flugmódelsportinu vel, þá held ég að réttur minn að fljúga smáflygildi þar sem það veldur öðrum hvorki hættu né ónæði sé sjálfsagður.
Það að einhver kunni að gera eitthvað heimskulegt með flugmódeli og valda tjóni verður að vera á ábyrgð viðkomandi.
Ef við bönnuðum þetta í félögunum, myndi það bara fæla menn frá félagsskapnum, þar sem kanski væri hægt að hafa pósitíf áhrif á með vinsamlegum ábendingum (þeas að fljúga ekki stærri vélum innanbæjar og menn beri ábyrgð á eigin gjörðum). Reglur um svona lagað eiga hvorki að koma frá mér eða þér, heldur félögunum eða jafnvel löggjafanum.
Ég held líka að þó við hættum allir að fljúga svona, myndi það ekki tryggja að tjón verði ekki með flugmodeli.
Loks held ég að hræðslan við að orðspor flugmódelíþróttarinnar myndi skaðast við tjón sé etv. ofmetin. Alla vega hef ég nóg að gera við að tjasla hinum og þessum iðkendum nánast allra annarra íþróttagreina en flugmódelmanna
Kveðja
Gunni Binni
PS. Björn geir gæti etv fengið einhvern bissness í að minnka magann á sumum flugmódelmönnum. (nei ég er ekki að tala um Jón Gunnar)