Ripmax Nova 40 trainer
- Páll Ágúst
- Póstar: 646
- Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00
Re: Ripmax Nova 40 trainer
Jæja, núna byrjaði ég að setja saman og það gekk bara vel:
Ég byrjaði á að setja límband á kantinn svo epoxy-ið færi ekki á vænginn
Báðu megin
Síðan makaði pabbi líminu á sem að vísu þurfti að skafa af því það var orðið hart þegar við ætliðum að setja vængina saman
Flott vinnuaðstaða
Rúm
Komin með hjólastell
Setti vænginn á...en bara fyrir myndatöku
Og þá byrjuðu vandræðin (ég myndi alveg þyggja góð ráð)
ég var semsagt að líma stélið í og gleymdi mér aðeins og þegar ég ætlaði að fara að ýta þessu saman var límið orðið þurrt og of mikið bil eins og sést var ég aðeins búinn að reyna að laga til með skurðaðgerð Því spyr ég: hað er hægt að gera?, hvað get ég gert?, ef ekkert er hægt... er til nýtt stél á nova í tómó? eða þarf ég að smíða annað?
OS .46 LA mátaður á festingar
Trillitækið komið með nefhjól og flass af myndavél að framan til að halda jafnvægi.
Ætla að reyna að klára á morgun. Svo sjáumst við á Hamranesi á hiðvikudaginn, ég, þú og litla trillitækið

- Björn G Leifsson
- Póstar: 2914
- Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45
Re: Ripmax Nova 40 trainer
[quote]...hað er hægt að gera?, hvað get ég gert?, ef ekkert er hægt... er til nýtt stél á nova í tómó? eða þarf ég að smíða annað?[/quote]
Þú þarft alls ekki að örvænta. Einfaldast er að útvega sér svokallaðar pinnalamir td frá Robart og setja þær í staðinn (við hliðina á mislukkuðu lömunum). Það er einfaldlega borað gat og lamirnar límdar í með epoxý, trélími, límkítti eða öðru hentugu. Einfaldast er að nota epoxý en það er mikilvægt að setja örlítinn dropa af saumavélarolíu í lömina sjálfa (nota tannstöngul til að setja olíuna á) áður en maður límir hana í svo límið fari ekki í hana og festi. Þarft ekki nema þrjár í hvert.
Ef þú finnur ekki svipaðar lamir í tómó þá láttu mig vita.
Þessar b-uðu sýrulímslamir eru ekki alveg góðar við mann ef maður fer vitlaust að. Maður verður að nota mjög þunnt sýrulím (sem rennur eins og vatn) og vera búinn að stilla allt af þegar maður dreypir því í bilið því þetta festist á augabragði. Það borgar sig alls ekki að nota þykkt sýrulím eins og sums staðar er lýst því það endar auðveldlega svona.
Lýsingin mín hérna er svo sem pinulítið flóknari en þarf að vera en lýsir góðri aðferð og öruggri.

"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
H.L. Mencken
- Páll Ágúst
- Póstar: 646
- Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00
Re: Ripmax Nova 40 trainer
Takk rosalega, eru lamirnar límdar ofaná stélið?
Re: Ripmax Nova 40 trainer
[quote=Páll Ágúst]Takk rosalega, eru lamirnar límdar ofaná stélið?[/quote]
Nei, þær eru límdar í endakantinn, fyrir miðju og síðan í mitt stýrið. Skoðaðu hér: http://www.robart.com/how_to/hinge_points.aspx

Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
- Páll Ágúst
- Póstar: 646
- Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00
Re: Ripmax Nova 40 trainer
Kúl, vissi ekki að þetta væri svona teinn, er þetta til í mismunandi stærðum?
- Páll Ágúst
- Póstar: 646
- Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00
Re: Ripmax Nova 40 trainer
Búið að kaupa auka batterí og lamir að vísu ekki pinnalamir því stélið er svo þunnt, heldur venjulegar litlar ,þunnar. Þetta með stélið reddaðist og það er búið að líma það saman bara að setja servó inn í vænginn og tein í bensíngjöf og við erum RTF
Ein spurning: Hvort er mótorinn í botni þegar blöndungurinn er alveg opinn eða alveg lokaður?
Ein spurning: Hvort er mótorinn í botni þegar blöndungurinn er alveg opinn eða alveg lokaður?
Re: Ripmax Nova 40 trainer
Alveg opin er hann i botni.
- Páll Ágúst
- Póstar: 646
- Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00
- Páll Ágúst
- Póstar: 646
- Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00
Re: Ripmax Nova 40 trainer
Vængskrúfurnar týndar Fór í húsasmiðjuna og keypti skrúfur en þær pössuðu ekki Ef þið eigið svona skrúfur ( þetta voru plast skrúfur 4mm þykkt og 35mm á lengd(4x35)) sem þið megið sjá af endilega látið mig vita. bokaormur8 hjá gmail.com eða 846-9097
Kv. Páll
Kv. Páll
- Páll Ágúst
- Póstar: 646
- Skráður: 2. Maí. 2009 05:00:00
Re: Ripmax Nova 40 trainer
Málið leyst! skrúfgangurinn var fyrir 2mm skrúfu en ekki 4mm