Síða 2 af 2
Re: Gremlin combat
Póstað: 2. Maí. 2010 18:46:57
eftir Gaui
Eftir testflug sem tókst bara með ágætum, kom í ljós að það þarf all miklu meira reflex en teikningarnar sýna. Hér sést hvað ég setti mikið upp á hæðarstýrin til að fá beint flug:
Svo fórum við út í garð og stilltum inngjöfina þannig að þegar ég set trimmið alveg niður, þá deyr á mótornum, svo ég þurfi ekki að brjóta spaða í hverri lendingu:
Það verður gaman næst þegar við förum á Melana
Re: Gremlin combat
Póstað: 2. Maí. 2010 22:08:16
eftir Gaui K
þá deyr á mótornum, svo ég þurfi ekki að brjóta spaða í hverri lendingu:
Bara vera með grasbrautir þá þarf ekki að hafa áhyggjur af því að brjóta spaða
Re: Gremlin combat
Póstað: 3. Maí. 2010 08:58:39
eftir Gaui
Já, GauiK minn, það er ekki mikið um gras á Melunum.
Re: Gremlin combat
Póstað: 3. Maí. 2010 10:55:50
eftir maggikri
[quote=Gaui]Já, GauiK minn, það er ekki mikið um gras á Melunum.[/quote]
Best er að vera með bæði gras og malbik! já og yfirbyggðan völl líka, svona er það nú!
kv
MK
Re: Gremlin combat
Póstað: 3. Maí. 2010 22:08:14
eftir Messarinn
[quote=maggikri][quote=Gaui]Já, GauiK minn, það er ekki mikið um gras á Melunum.[/quote]
Best er að vera með bæði gras og malbik! já og yfirbyggðan völl líka, svona er það nú!
kv
MK[/quote]
Hæ Maggi er ennþá 2007 hjá þér hehe góður
Re: Gremlin combat
Póstað: 3. Maí. 2010 22:38:20
eftir Gaui K
[quote=Messarinn][quote=maggikri][quote=Gaui]Já, GauiK minn, það er ekki mikið um gras á Melunum.[/quote]
Best er að vera með bæði gras og malbik! já og yfirbyggðan völl líka, svona er það nú!
kv
MK[/quote]
Hæ Maggi er ennþá 2007 hjá þér hehe góður[/quote]
Já fínt að hafa það bara 2007 stílinn! en ég get nú samt ekki toppað þetta
Re: Gremlin combat
Póstað: 4. Jún. 2010 16:05:41
eftir Árni H
Það er best að koma því hér að í þræðinum að ég frumflaug Gremlin í gærkvöldi. Ég er með gamlan OS .40 í vélinni og það er skemmst frá því að segja að þessi hræódýra samsuða kom mér verulega á óvart.
Gaui skutlaði vélinni í loftið fyrir mig og eftir að hafa séð hann plægja Melana í sínu frumflugi ákvað ég að hafa annan háttinn á og passaði að hafa allt þetta með útlendu nöfnunum í miklum plús. Með allt í botni spýttist vélin nánast þráðbeint til himins og ég varð að trimma hana dálítið duglega niður. Hallastýrin þurftu hinsvegar bara 1 - 2 klikk og þá flaug hún beint. Það tók smástund að venjast útlitinu en eftir nokkra hringi var ég farinn að átta mig nokkurn veginn á því hvað snéri fram og hvað aftur.
Ég flaug vélinni í u.þ.b. hálftíma samtals og þetta er ein af þessum vélum sem maður fær strax notalegt sjálfstraust við að fljúga - svo þæg er hún ef maður getur haldið aftur af puttunum á sér. Aflið með .40 mótor er yfirdrifið og vertikalið er takmarkalaust. Loftfimleikar takmarkast við æfingar sem hægt er að gera án hliðarstýris og snertilendingar eru ekki á dagskránni - eins og fram kom í gærkvöldi
Ég get hiklaust mælt með því að menn smíði svona vél ef þá vantar ódýra, skemmtilega og fljótsmíðaða vél sem kemst samsett í bílinn. Skemmtanagildið miðað við verð og fyrirhöfn er ótvírætt!
Þið verðið að afsaka að þetta eru sömu myndir og í þræðinum frá Gauja en mér lá svo á út úr dyrunum í gær að ég steingleymdi myndavélinni
Ég set inn fleiri myndir seinna.
Kveðjur bestar,
Árni H
Re: Gremlin combat
Póstað: 6. Apr. 2011 14:53:26
eftir Árni H
Þið munið hann Gremlin, er það ekki? Hann endaði svona eftir gróðursetningu síðastliðið sumar:
Stýrin brotin af og sjálf brotin, vængurinn brotinn af vélinni, vængendar laskaðir, klæðningin flett af, bensíntankurinn ónýtur, blöndungurinn ónýtur og proppurinn auðvitað í steik.
Nú er sólin farin að skína og þá er tilvalið að hressa Gremlin við fyrir vorið. Fyrst var hreinsað út...
Svo var settur nýr og stærri tankur frá
www.justengines.co.uk (það skýrir litinn á tappanum)...
Skipt um blöndung - ekkert verið að þrífa of mikið
Og allt klárt, samanlímt og græjað enda Gremlin ætlaður til skyndiviðgerða. Skemmtileg og ódýr vél!
Ég mæli með því að menn prófi justengines - þetta er virkilega góð verslun með góða þjónustu. Þeir eru að vísu að flytja í augnablikinu en það hlýtur að taka endi.
Jæja, hvernig er nú spáin fyrir helgina?
Kv,
Árni Hrólfur
Re: Gremlin combat
Póstað: 17. Apr. 2011 19:01:36
eftir Gaui
Mummi er tilbúinn með sinn Gremlin fyrir sumarið:
Og Óli Njáll er að byrja samsetningu á einum slíkum með góðri aðstoð frá Árna Hrólfi:
Það verður skemmtilegur flokkur Gremlina á Melunum í haust.