Viper Jet
Re: Viper Jet
Getur verið með þær á sér takka á stýringunni eða mixað þær inn í aðra rás. Í vélinni þá er þetta loftslanga sem þrýstingur er settur á úr forðabúri, hún getur svo blásið út gúmmíhring eða bremsudiska.
Gekk frá innstungu fyrir hliðarstýris servóið.
Ætti ekki að fara langt.
Ég þarf hins vegar örlítið meiri slaka á snúrunum fyrir hæðarstýrin svo ég nota Ashloks þar. Það eru rétt rúmlega sex metrar af vírum bara fyrir stjórnfletina aftur í stéli.
Þarf að smíða eins og eina tækjaplötu fyrir bensíndælu og fleiri fylgihluti.
Þetta ætti allt að komast fyrir þarna.

Icelandic Volcano Yeti
Re: Viper Jet
Var að velta fyrir mér þessu með bensíndæluna, auk hennar er einhverskonar Fuel Control Unit (FCU) sem stjórnar flæði eldsneytis inn á mótorinn? Er það unit síðan tengt inn á móttakara eða er ég að ímynda mér þetta kolvitlaust....?
Frábært að fylgjast með.
Takk.
Frábært að fylgjast með.
Takk.
Ingólfur Einarsson
YAK54/DLE111 ? ULTRA STICK/DA35 ? ELAN/P120SX ? ULTRA FLASH/P120SE
YAK54/DLE111 ? ULTRA STICK/DA35 ? ELAN/P120SX ? ULTRA FLASH/P120SE
Re: Viper Jet
FADEC maður, þetta er keppnis. En annars virðistu þekkja þetta eða svipuð kerfi.
FADEC hjá Jetcat(og öðrum framleiðendum) er kallað ECU, Electronic Control Unit, og sér um að opna raflokana(e.solenoid/shut-off valve á myndum) í ræsingarferlinu og stjórna flæðinu á eldsneytisdælunni í samræmi við merkið sem móttakarinn sendir fyrir bensíngjöfina til að halda ákveðnum snúning. Til að auðvelda sér lífið þá fylgist ECU með snúning mótorsins og hitastigi útblásturs en einnig er hægt að tengja pitot og/eða GPS við ECU og nota til að setja takmörk á hámarkshraða vélarinnar.
Læt tvær myndir fylgja með.
Rafmagnshlutinn
Eldsneytishlutinn

Var í smá stund að íhuga hvernig ég gæti fest tækjaplötuna að aftan þar sem ég þarf að geta tekið bensíntankinn úr vélinni, svo kveiknaði smá ljós og ég límdi kubbana á tankinn.
Hitaþolnir barkar liggja aftur að stélflötunum.
Hér kemur svo plata á milli snúranna og útblásturspípunnar.
Loftkútarnir fyrir hjólastellið verða efst í hvalbaknum.
Flipi búinn til úr flugvélaáli, ætlaður í að tryggja lóðrétta stélflötin að framan.
Hér er búið að taka úr fyrir honum og smyrja Hysol duglega inn í neðri hluta stélsins.
Svo var stykkið sett aftur í sem var skorið úr, svo var bara að leyfa þessu að þorna áður en farið var í mótvægisaðgerðir í skrokknum.
Límið orðið þurrt, þá er bara að merkja og skera.
Bjó til kubb sem tekur á móti flipanum og fyllir einnig upp rýmið þar sem ég þarf að bora fyrir skrúfunni.
Þessi kubbur kemur svo á móti en innan í honum er gaddaró.
Hér sést annar kubburinn á sínum stað og svo var smá bið á meðan límið þornaði.
Hér er búið að bora í gegnum allt dótið og taka úr fyrir skinnu sem verður límd í.
Svo skelli ég smá hvítum lit á þetta og þá hverfur það og stélflöturinn fer hvergi!
Félagi Ingólfur tjáði mér það í febrúar að hann þyrfti að skreppa til Hollands að leika sér í kassa(sandkassa? hver veit ) þá helgina og var að forvitnast um hvort mig vanhagaði um eitthvað. Það vill svo skemmtilega til að Digitech í Hollandi framleiðir „trailing link“ leggi fyrir Viperjet sem ég hef haft augastað á. Eftir smá viðræður og símtal til Sandors þá fór pakki í póst með UPS(€13 fyrir flutning og afhendingu daginn eftir, ekki slæmt) og hann beið svo eftir Ingólfi þegar hann kom út á hótelið. Takk fyrir „gamli“ minn!
Vefmyndavélin vinnur engar ljósmyndakeppnir en það má vel greina hvað er þarna á ferð og svo voru næstu dagar bara eins og biðin eftir aðfangadegi í gamla daga.
Aðeins betri mynd frá Digitech.

Jæja, svo þurfti að undirbúa tankana og eyddi annar tankurinn meirhluta helgar fullur af eldsneyti og ekki dropa að sjá að utanverðu. Það kom hins vegar ýmislegt út úr honum þegar hann var tæmdur eins og sjá má. Þetta var svo endurtekið nokkrum sinnum, þ.e.a.s. áfylling og tæming, ekki gaman að hafa óþarfa drullu í eldsneytiskerfinu.
Obbobbob... seinni tankurinn var ekki alveg jafn samvinnuþýður.
Nálarauga þarna sem tók upp á þessum dónaskap að leka. :/
Smá sandpappír, trefjadúkur, sýrulím og Hysol og tankurinn tilbúinn í annað lekapróf sem hann stóðst með sóma.
Hér er búið að smíða og gata tækjaplöturnar, næst á dagskrá var að koma einhverjum lit á þær.
Rofinn fyrir Powerbox og JetCat tengibrettið, hugmynd tvöþúsundsexhundruðsjötíuogníu eða eitthvað álíka...

- Gabriel 21
- Póstar: 92
- Skráður: 7. Jún. 2009 12:30:30
Re: Viper Jet
VVVVVVvvááááááá...hvað þetta er geggjuð vél hjá þér Sverrir
KV:Gabríel Daði
Falcon 50 SE í notkun, Great planes PT 20 í smíðum, TW Cessna 747 frá Bananahobby.com
Kemur sterkur inní sumar
Falcon 50 SE í notkun, Great planes PT 20 í smíðum, TW Cessna 747 frá Bananahobby.com
Kemur sterkur inní sumar
Re: Viper Jet
Glæsilegt Sverrir, til hamingju.
Kjartan
Kjartan
Re: Viper Jet
Úllala, Glæsilegt!! en áttu enga heildarmynd af dýrinu fyrir okkur?
Re: Viper Jet
Nokkrar hérna
Kv. Guðjón Bergmann, s: 6690069
---
"Ég vona að dag einn verði ég eitthvað meira en meðlimur" - Guðjón Bergmann, meðlimur