Síða 2 af 5

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 29. Júl. 2011 13:54:38
eftir Sverrir
Vika til stefnu!!!

Engar skemmtilegar fréttir af Melunum eins og við hverju má búast á staðnum? :)

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 1. Ágú. 2011 16:59:42
eftir Sverrir
Er ekki að verða kominn tími á að deila einhverjum upplýsingum með okkur sem ætlum að mæta eftir 4 daga!? :/

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 1. Ágú. 2011 17:26:20
eftir Ingþór
yr.no farin að spá betur fyrir svæðið.... lítur allt út fyrir að maður mæti

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 1. Ágú. 2011 18:45:52
eftir einarak
[quote=Sverrir]Er ekki að verða kominn tími á að deila einhverjum upplýsingum með okkur sem ætlum að mæta eftir 4 daga!? :/[/quote]
Piff, afhverju að bíða? Ég mætti fyrir 4 dögum!

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 1. Ágú. 2011 19:03:10
eftir Sverrir
Við erum svo lengi að pakka! ;)

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 1. Ágú. 2011 20:14:32
eftir Gaui
[quote=Sverrir]Er ekki að verða kominn tími á að deila einhverjum upplýsingum með okkur sem ætlum að mæta eftir 4 daga!? :/[/quote]
Það verður bráðega -- annars hafa all-flestir komið áður, svo það kemur ekkert á óvart.
:cool:

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 1. Ágú. 2011 20:33:27
eftir Gaui
Hér eru þær reglur sem við þurfum að hafa í heiðri á flugkomunni næstu helgi:

Flug fer fram á svifflugubraut austan við Flugstöð Þórunnar hyrnu.

Sendagæsla byrjar klukkan 09:00 og flugmenn eru hvattir til að afhenda senda sína eins fljótt og auðið er til að koma í veg fyrir óhöpp. Þetta á líka við um senda á tíðninni 2,4 gHz, þar sem það sést ekki úr fjarlægð á hvaða tíðni sendir er og það getur orsakað óþægindi fyrir aðra að vita af sendum utan gæslu.

Módel skal geyma á sérmerktum svæðum sem staðsett eru vestan við startboxið. Þannig geta áhorfendur skoðað módelin handan girðingar án þess að eiga á hættu að ganga á þau.

Hver flugmaður verður að hafa aðstoðarmann með sér sem getur sagt honum til um það sem er að gerast annars staðar og aðstoðað hann við að færa til módel og starttæki fyrir og eftir flug. Ætlast er til að flugmenn eða aðstoðarmenn fjarlægi módel og starttæki úr startboxinu þegar flugi er lokið. Þessi aðstoðarmaður er sérstaklega mikilvægur vegna þess að við getum búist við umferð flugvéla í fullri stærð.

Ekki má ræsa mótora nema módelið sé statt í startboxinu. Módelum má aðeins aka á merktri braut á milli flugbrautar og startsboxins. Aðstoðarmaður skal þá vera til taks til að hafa hemil á módelinu og forða árekstrum.

Flugmenn skulu standa á hliðarlínu flugbrautar á meðan þeir fljúga, það nálægt hver öðrum að þeir geti haft samskipti sín á milli, en þó ekki það þétt að þeir trufli hver annan. Þeir skulu bara fljúga yfir flugbraut og austan megin við hana. Þegar tvö eða fleiri módel eru á lofti í einu skulu allir fljúga sama umferðarhring.

Algerlega er bannað að fljúga yfir sýningarsvæði, startbox og bílastæði.

Eftir flug verður að drepa á mótor þegar módel kemur inn í startboxið.
:cool:

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 1. Ágú. 2011 20:50:40
eftir Páll Ágúst
Er enginn sem hefur auka sæti norður sem ég gæti fengið að sitja í? Ekki væri verra ef það væri pláss fyrir einn trainer líka. :)

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 1. Ágú. 2011 23:54:51
eftir Sverrir
Hvað með aðstöðu til að geyma módel, veitingasölu, gistingu og önnur skemmtileg „smáatriði?“ ;)

Það hafa jú ekki allir komið þarna eða vita hvernig málin ganga fyrir sig.

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstað: 2. Ágú. 2011 01:39:30
eftir Fridrik
Er þetta reglusamkoman fyrir norðan,

mætti nú koma með hvað verður gaman frekar, og það er vonandi einhverjir sem ekki hafa komið áður

kv
Friðrik