Síða 2 af 5
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 11. Apr. 2012 19:22:10
eftir lulli
Ánægður með þig í tengjamálum, Þetta er miklu gæðalegra en stök tengi út um allt. Það verður stíll yfir ykkur Friðrik og Sverrir með flottar Ultrur
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 11. Apr. 2012 19:43:48
eftir Sverrir
Svo skemmir læsingin ekki fyrir!
Ekki gleyma
Ingólfi, hans vél er nú ekki verri!
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 16. Apr. 2012 00:06:36
eftir Sverrir
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 28. Apr. 2012 23:04:58
eftir Sverrir
Verið nóg að gera annars staðar en á smíðaborðinu upp á síðkastið en ég átti loksins smá tíma lausan í vélina. Svo sem ekkert óvænt komið upp á, mótorinn og útblástursrörið er komið á sinn stað og bara smá snikkeringar eftir í kringum það.
Tankarnir voru þrýstiprófaðir, fann smá nálarauga á aðaltankinum, vonandi koma ekki fleiri glaðningar í ljós þegar þeir fara í útskolun.
Tækjaplöturnar byrjaðar að skríða saman.
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 28. Apr. 2012 23:14:55
eftir Flugvelapabbi
Flott utkoma Sverrir
Kv
EPE
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 29. Apr. 2012 19:32:31
eftir Messarinn
Magnað Sverrir
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 29. Apr. 2012 20:16:15
eftir Fridrik
flottur
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 6. Maí. 2012 21:59:01
eftir Fridrik
Bara dugnaður, flottur frágangur.
Já og ég sem er með mestu sleggjuna um borð :s
Re: CARF Ultra Flash
Póstað: 7. Maí. 2012 00:28:14
eftir Ingþór
Félagi Marc hóf framleiðslu á þessum í fyrra, hafa gefist mjög vel.
Er þetta það sama og við köllum heddertank í þyrlunum?
11 rásir verða notaðar.
Ertu búinn að fá þér 18MZ?
Gróðurhúsið á sínum stað, það verður sennilega svart að lokum, þarf aðeins að semja við Magga fyrst.
Ef það væri kosning myndi ég setja X við gegnsætt, frágangurinn er svo flottur að það er synd sýna hann ekki, amk til að byrja með. Alltaf hægt að breyta glæru í svart en verra að gera það á hinin veginn.