Mér sýnist að það vanti bæði sendi og rafhlöður í þessa græju. Það skýrir kannski verðið!
Re: Ný Turnigy stýring 9XR
Póstað: 30. Des. 2012 16:54:27
eftir hrafnkell
Mér líst ágætlega á hana, vantar líka aðra stýringu (á dx7 fyrir)... En Er eitthvað betra við þessa en gömlu, 9x? Fyrir utan að það er búið að gera örlítið þægilegra að flasha kvikindið og backlit lcd?
Re: Ný Turnigy stýring 9XR
Póstað: 30. Des. 2012 17:53:13
eftir einarak
[quote=Gaui]Mér sýnist að það vanti bæði sendi og rafhlöður í þessa græju. Það skýrir kannski verðið!
[/quote]
Ef þetta verður verðlagt einsog fyrri turnigy stýringin þá kostaði sú 5$ meira með standard sendinum.
[quote=hrafnkell]Mér líst ágætlega á hana, vantar líka aðra stýringu (á dx7 fyrir)... En Er eitthvað betra við þessa en gömlu, 9x? Fyrir utan að það er búið að gera örlítið þægilegra að flasha kvikindið og backlit lcd?[/quote]
Ég veit ekki hvort það er einhver munur á inviðnum en Það sem er aðal nýjungin við þessa er er9x hugbúnaðurinn, þessi hugbúnaður var upphaflega hannaður af "amatörum" til að flasha gömlu 9x og gera hana notendavænni. T.d. býður gamla 9X ekki upp á throttle curve fyrir flugvélar, en þessi bíður upp á allt slíkt. Á http://9xforums.com/forum/index.php? er hægt að skoða allt um er9x hugbúnaðinn og ná í simulator og allar græjur til að sjá hvernig hann virkar
Re: Ný Turnigy stýring 9XR
Póstað: 27. Jan. 2013 14:51:53
eftir Gaui
Bruce Simpson er búinn að fjalla um þessa stýringu og líkar hún ekki:
Hann ætlar að skoða inní hana í næstu viku.
Re: Ný Turnigy stýring 9XR
Póstað: 27. Jan. 2013 23:56:30
eftir einarak
Já, Bruce veit hvað hann syngur, enda er gamla Turnigy 9x uppáhalds stýringin hans. Það verður gaman að sjá hvað hann segir við innviðnum í þeirri nýju
Re: Ný Turnigy stýring 9XR
Póstað: 28. Jan. 2013 12:16:49
eftir hrafnkell
Fínt að sjá þetta review.. Er einmitt að fara að bæta við mig fjarstýringu og hugsa að ég grípi þá bara 9x. Hvar er best að kaupa hana núna?