Síða 2 af 2
Re: Flugdagar
Póstað: 3. Des. 2006 11:24:15
eftir kip
Hehe snilld, best að drífa sig inn á mela og reyna koma þessum mustang í gang.
Hvernig er það á Seltjörn, er sólin yfirleitt á réttum stað miðað við flugmenn eða er flogið hvar sem er þarna þannig að menn snúa bara baki í sólina þegar hentar?
Re: Flugdagar
Póstað: 3. Des. 2006 11:30:32
eftir Siggi Dags
Frábært! myndband.
Færi strax út á völl að reyna þetta ef trainerinn væri ekki upp í sumarbústað og munstrarinn í slipp

Re: Flugdagar
Póstað: 3. Des. 2006 12:34:40
eftir maggikri
Góðan dag. Ef ég svara spurningu frá KIP. Já það er hægt að snúa sér frá sólinni, en ekki æskilegt þar sem það er bannað að fara yfir pittinn. Í þessu tilfelli vorum við að ná góðum myndum af vélinni hans Guðna undan sól og hann flaug bara yfir brautirnar og hann var einn í loftinu. Best er að halda sér við öryggisreglurnar. Í raun er hægt að vera hvernig sem er ef allir eru á sama stað og að pitturinn er save.
Kv
MK
Re: Flugdagar
Póstað: 3. Des. 2006 13:03:35
eftir Helgi Helgason
En hvernig er það verður því ekki uppljóstrað hver atvinnumaðurinn á myndbandinu er? Var það Guðni, Gunni, Sverrir eða já hinn alræmdi flugmaður Magnús Kri?
Re: Flugdagar
Póstað: 3. Des. 2006 19:47:07
eftir maggikri
Sæll Helginn. Þetta var kallinn sjálfur. En ég tek það fram að þetta var nú sennilega lakasti hringurinn hjá mér þar sem tók á undan sennilega 30 hringi á punktinum. En þú veist þegar það er verið að taka video af manni þá klikkar maður aðeins.
kV
MK
Re: Flugdagar
Póstað: 3. Des. 2006 21:02:44
eftir Helgi Helgason
Já mín reynsla er sú að láta engan vita þá verður þetta eðlilegast. Annars vitna ég líka í bók um stafræna myndatöku en þar segir: Segðu módelinu (þessu mannlega (mitt innskot)) að nú sé tökum lokið og það geti slakað á, taktu samt nokkur skot i viðbót og nokkuð víst er að þú fáir nokkrar skemmtilegar myndir í viðbót.
Re: Flugdagar
Póstað: 4. Des. 2006 23:55:15
eftir Guðni
Flott video.....
Það var líka tekið aðeins á því á Hamranesi á sunnudeginum..3/12

Frábær dagur.og gaman...

sérstaklega þar sem langt er síðan farið hefur verið að fljúga...

Kveðja....