Síða 2 af 2

Re: 27% Yak M55

Póstað: 27. Ágú. 2013 01:16:29
eftir Sverrir
Unnið í aðgangslúgu fyrir kútinn.
Mynd

Útblástursrörið stytt á kútnum.
Mynd

Bjarni mátar vélarhlífina á í milljónasta skiptið.
Mynd

Vígalegt sjónarhorn!
Mynd

Allt annað að sjá þetta.
Mynd

Festingar fyrir kútinn að aftan.
Mynd

Hún stendur ekki á gati blessunin.
Mynd

Re: 27% Yak M55

Póstað: 27. Ágú. 2013 02:16:53
eftir maggikri
Mynd

Re: 27% Yak M55

Póstað: 27. Ágú. 2013 13:22:55
eftir Haraldur
Ég held að það hafi verið vitleysa hjá þér að stytta útblásturrörið. Núna færðu drullu og skít inn í littla hólfið sem er í kringum útblásturrörið.

Re: 27% Yak M55

Póstað: 27. Ágú. 2013 13:31:30
eftir Sverrir
Það er ekkert lítið hólf í kringum rörið það er öll vélarhlífinn. Annars var rörið ekki stytt frá fagurfræðilegum sjónarmiðum, það var einfaldlega til að koma vélarhlífinni á án þess að skemma eitthvað. Það verður svo framlengt með hentugri slöngu á seinni stigum málsins.

Re: 27% Yak M55

Póstað: 27. Ágú. 2013 13:38:52
eftir Agust
[quote]5stk Savöx SC 1256 TG servó.
1stk standard digital servó frá Futaba.
Eitthvað ódýrt standard servó fyrir innsog.
Spektrum AR9110 móttakari.
5 sellu 2000 mah nimh eneloop fyrir kveikju.
PowerBox Systems SparkSwitch fyrir kveikjuna.
2stk NoBS 2500mah LIFe 6,6V fyrir Servó.[/quote]

Ég tek eftir að notuð eru Savöx servó, en ekki Futaba, JR eða Hitec.

Eru Savöx servóin betri, ódýrari eða eitthvað annað en gömlu þekktu merkin?

(Hér voru smá umræður um Savöx http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=7043 )

Re: 27% Yak M55

Póstað: 27. Ágú. 2013 16:52:28
eftir Elson
Mér bauðst að taka servóin með sömu sendingu og vélin kom í, og eftir að hafa skoðað umræður um þessi servó á veraldarvefnum ákvað ég að slá til og prófa.

Re: 27% Yak M55

Póstað: 29. Ágú. 2013 00:06:14
eftir Elson
Sverrir lét mig hafa heimaverkefni sem fólst í því að koma servóunum fyrir í hæðarstýrum og vængjunum.
Servó erum komin á sinn stað í hæðarstýrum, ég á bara eftir að mála hornin og gera fínt.
Mynd
Ætli þetta "travel" verði ekki látið duga til að byrja með :-)
Mynd
Frekar þröngt aðgengi, en hafðist að lokum. (Ath ekki búið að ganga frá servósnúru)
Mynd

Re: 27% Yak M55

Póstað: 29. Ágú. 2013 17:16:24
eftir einarak
meira travel!

Re: 27% Yak M55

Póstað: 29. Ágú. 2013 17:53:38
eftir Elson
50cc manuallinn frá Tony mælir með 40° high rate og 12° low rate til að byrja með á hæðarstýri, svo getur maður alltaf aukið við þegar fram líða stundir.