Síða 2 af 7

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 17. Sep. 2013 16:53:25
eftir Björn G Leifsson
Þessir virðast ætla að gera út á svona græju: http://isky.is

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 17. Sep. 2013 20:38:51
eftir Gauinn
Þetta er auðvitað stórsniðugt, en sko, stundum farið í taugarnar minar hversu bjagaðar myndirnar eru vegna víðrar linsu, á móti kemur að myndflagan er lítil, brennivíddin spes, þannig að fókusdýpt er mikil, allt í réttum fókus sem myndað er, sem er gott í svona verkefni, en svolítið "gerilsneytt" fyrir minn smekk,
Hengja "full frame" vél neðan í svona tæki væri toppurinn, algjörlega fjarstýrð frá jörðu niðri, það kemur þegar speglum og glerjum verður úthýst fyrir hugbúnað.

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 17. Sep. 2013 20:47:53
eftir Vignir
Er sammála varðandi brennivídd, allt of gleið fyrir minn smekk. Skrítið að þeir skuli ekki bjóða upp á fleiri linsur í annars mjög góða vél.

Vignir

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 17. Sep. 2013 21:16:16
eftir Agust
Adobe Lightroom 5 er með linsuleiðréttingu sérsniðna fyrir GoPro Hero3.

http://blogs.adobe.com/lightroomjournal ... -labs.html

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 17. Sep. 2013 22:07:52
eftir Gauinn
[quote=Agust]Adobe Lightroom 5 er með linsuleiðréttingu sérsniðna fyrir GoPro Hero3.

http://blogs.adobe.com/lightroomjournal ... -labs.html[/quote]
Það er flott, málinu reddað.

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 17. Sep. 2013 22:36:50
eftir Agust
Ég keypti í fyrra Prodrenalin fyrir GoPro. Lagfærir linsubjögun og hristing í vídeó.

http://vegasaur.com/ProDRENALIN

http://www.prodad.com/home/products/act ... ,l-us.html


Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 18. Sep. 2013 00:32:27
eftir Gauinn
Bara snilld er það ekki?

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 18. Sep. 2013 21:17:57
eftir Agust
Ég flaug flygildinu tvisvar í bakgarðinum í dag. Þetta var nú mest hoover í 2ja metra hæð, en fór eitt sinn í tvöfalda húshæð. Þetta var sem sagt bara tilraunaflug í litlum garði.

Ég notaði GPS mode, en þannig helst flygildið kyrrt á sama stað þar til maður stýrir því áfram, afturábak eða út á hlið. Í vindi hallar það sér upp í vindinn og helst þannig á sama stað án þess að reka undan vindinum.

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 19. Sep. 2013 01:14:16
eftir Tómas E
Ég mæli með að þú skoðir svona brushless gimbal, hér er myndband sem ég tók sem sýnir armana á þyrlunni svo það sjáist hvað þetta er að virka vel :)

Re: DIJ Phantom settist á borðið mitt í dag

Póstað: 19. Sep. 2013 08:10:41
eftir Agust
Satt segir þú Tómas.

Svona rambaldi er alveg magnaður og virkar ótrúlega vel.