Síða 2 af 4
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 17:15:37
eftir Sverrir
Spurning hvernig vatnið færi með balsann?
Annars held ég að viðarkaupinn myndu hleypa þeim kostnaði upp og svo þarf auðvitað að koma teikningunni yfir á rafrænt form, raða svo niður á viðarplöturnar þeim hlutum sem á að skera út o.s.frv. þannig að það er talsverð vinna eftir frá því að teikningin kemur á rafrænt form. Svo til að toppa það þá eru ekki allar vélarnar að nota sömu sniðmátin til að láta mata sig með.
Það hlítur að fyrirfinnast svona vél hér á landi, nú er bara að fara og leita
Ég veit alla veganna að næst þegar ég kaupi laserskorið kit, þá ætla ég að spara mér fyrirhöfnina og fá fullt kit ef það er hægt.
Bendi á
þennan póst sem er með tengil á nokkra laserskera.
Fáum við annars ekki smíðaþráð frá þér þegar Súper Köbb smíðin hefst?
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 19:02:30
eftir Gaui
Hérna er eitt fyrirtæki í Englandi:
http://www.belairmodels.com/
Við hittum þennan gaur á Cosford og hann virtist vera ágætur. Mjög flott skorin kitt hjá honum.
Ég hef mikið heyrt af Laser Lizard (
http://www.laserlizard.com/) og Vailly, sem hannaði FW190 sem ég smíðaði, mælir með þessum gaur:
http://www.precisioncutkits.com/
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 19:04:30
eftir Gaui
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 19:58:12
eftir Offi
Það er í svona tilvikum sem það er gott að vera hjarðdýr í svona félagsskap. Hópurinn verndar einstaklingana. Ég hugsa að það sé væntanlega best að skipta við þá sem teiknararnir eru í samskiptum við og mæla með á sinni síðu. Þeir hafa líklega teikningarnar á stafrænu formi og þannig verður skekkjan minnst.
Ég þakka því góð ráð. Ég tek frá einhverjum þessara "viðurkenndu" aðila. Þetta eru ekki þær upphæðirnar að maður eigi að spara þær þegar maður er kominn í þetta á annað borð.
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 20:33:50
eftir Offi
Var annars að fá meil frá Larry hjá
www.precisioncutkits.com. Hann hafði þetta að segja:
[quote]Ofeiger
The kit (86") is $345.00 and shipping to Norway will be app $90.00 via United States air Parcel Post.[/quote]
Ég er engu bættari með það ef maðurinn sendir þetta allt til Norge!!!

En ég hugsa að ég hoppi á þetta boð hans ef mér tekst að sannfæra hann um að senda til Íslands í staðinn!

Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 20:59:14
eftir Sverrir
Hann hefur sennilega heyrt um viðræður okkar við Norðmenn um varnir landsins og ályktað sem svo að þeir væru að fara að innlima okkar sem eitt af fylkjunum sínum :rolleyes:
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 21:06:25
eftir Offi
Já... þetta yrði þá væntanlega liður í loftvörnum okkar!
Ég fékk raunar annan meil frá Larry... (þar hét ég Ofeigre) og hann segist myndu senda þetta til Íslands. Ég held bara að ég sé að ná lendingu í þessu máli bráðum. En þetta er lærdómsríkt og það er vel.
Nú bíð ég eftir bókinni sem ég pantaði mér um fuglinn minn fagra!
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 21:26:09
eftir Þórir T
Var að renna í gegnum þennan þráð, nokkuð fróðleg lesning...
Uppá Krókhálsi ku vera til fyrirtæki sem heitir Geislatækni sjá
http://www.laser.is
ég myndi spjalla við þá, hef heyrt að þar leynist meira að segja flugáhugamenn innandyra...
mbk
Mr T
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 23:02:21
eftir Steinar
Já þeir í Geisla eru frábærir mæli hiklaust með þeim.
Re: Laser Kit - Reynslutölur
Póstað: 13. Des. 2006 23:04:16
eftir Offi
Já, alveg spurning um að einhver fórni sér! Volunteers? Anyone?
