Exopy lím

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
TEX
Póstar: 24
Skráður: 8. Mar. 2006 09:14:50

Re: Exopy lím

Póstur eftir TEX »

Það ætti ekki vera neitt mál. Best er að kíkja hann, það er að kíkja á afturbrún ef þú sérð ekki muninn þá er þetta í lagi. Svo er þetta trimmað úr í flugi!!!
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Exopy lím

Póstur eftir Agust »

Ég helda að mín reynsla hafi kennt mér að því lengur sem límið helst fljótandi, þeim mun betur gengur það inn í viðinn. Það held ég að sé ein skýringin á því að 12 tíma lím er lang best. Ég fer eins konar milliveg og nota mest 30 mínútna lím, en 5 mínútna lím aðeins í neyð.

Það má reyndar bæta því við, að ef epoxylímið er hitað, t.d. með hitablásara, þá verður það þynnra og harðnar mun fyrr. Efnabreytingin gengur hraðar ef límið er heitt.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Gaui
Póstar: 3853
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Exopy lím

Póstur eftir Gaui »

Hvaða módel ertu að setja saman? 2mm skekkja þarf ekki einu sinni að vera vegna þess hvernig þú settir saman í rótina, heldur gæti þetta verið spennuskjekkja í smíðinni.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Exopy lím

Póstur eftir einarak »

Þetta er great planes Cessna 182 Skylane, með 165cm vænghaf
og hreifillinn verður Saito FA.56 4-stroke

Mynd
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Exopy lím

Póstur eftir Björn G Leifsson »

2mm er ekkert að hafa áhyggjur af eins og Þröstur bendir á þá trimmast það til. Ég geri ráð fyrir að vængstífurnar séu festar þannig að þær taka heilmikið álag af vængrótinni svo límíngin er ekki krítískt atriði.
Verðu gaman að sjá þessa fljúga.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Exopy lím

Póstur eftir einarak »

Svo ef mér líst ekki a blikuna fer ég bara með hana til þrastar og segi að vænginn hafi vantað í kassann HEHEHEHE
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Exopy lím

Póstur eftir einarak »

[quote=Björn G Leifsson]2mm er ekkert að hafa áhyggjur af eins og Þröstur bendir á þá trimmast það til. Ég geri ráð fyrir að vængstífurnar séu festar þannig að þær taka heilmikið álag af vængrótinni svo límíngin er ekki krítískt atriði.
Verðu gaman að sjá þessa fljúga.[/quote]
Og enn skemmtilgra að sjá hana lenda :/
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Exopy lím

Póstur eftir Agust »

Ég skil ekki hvað þið eruð að tala um, en ef illa tekst til, þá má alltaf breyta flygildinu í Ornithopter .
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Exopy lím

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=einarak]Og enn skemmtilgra að sjá hana lenda :/[/quote]
Eitt getur þú alltaf verið viss um. Ef þér tekst að fá flugmódel til að lyfta sér frá jörðinni þá er alveg öruggt að hún lendi aftur.
Aðdráttarafl jarðar hefur enn ekki verið sigrað af nokkrum módelflugmanni :D

Það sem þú sem flugmaður þarft að sjá um er auðvitað að láta hana lenda þegar þú villt, þar sem þú villt og eins mjúklega og kostur er. Þar kemur æfing að góðum notum og hana fær maður nú til dags best í flughermi ;)
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Exopy lím

Póstur eftir kip »

Þegar ég var að fljúga skiptið var ég með áhyggjur hvort ég næði henni niður, þá sagði módelflugkennarinn minn að Newton gamli sæi um það fyrir okkur, ég sá aldrei þennan Newton, ætli hann komi á Flugkomuna 2007?
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Svara