Síða 2 af 4
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 31. Jan. 2007 22:06:01
eftir Óli Kr
sælir félagar ég er einmitt að lesa sögu Selfoss um þessar mundir og finn engar heimildir um spitfire í kaldaðarnesi en þar voru fairey battle og tiger moth sem voru notaðar til æfinga en ég vinn í málinu bless í bili
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 31. Jan. 2007 22:13:44
eftir Gaui K
Ein góð af Kaldaðarnesi:
Þannig voru aðstæður þar í þá daga að völlurin var mjög meir og oft erfitt um vik fyrir þungar vélar að athafna sig þarna í mýrinni.Margar vélar voru nefþungar og voru allar stélhjólsvélar svo að þá voru menn oft látnir sitja á stélinu á meðan verið var að koma vélini á brautina.Svo vildi það til í eitt skiptið að þegar flugmaðurin var kominn á brautina gaf hann allt í botn og gleymdi mönnunum tveim sem sátu aftan á stélinu annar hafði að stökkva af í tíma og meiddist nú reyndar lítilsháttar en hinn þorði ekki að stökkva af og fór upp með vélinni! Sat þar og hélt dauðahaldi í stélið.Þegar búið var að láta flugmannin vita í gegnum talstöðina að það væri maður aftan á stélinu hjá honum lenti hann náttúrulega strax og var víst mjög brugðið.Stélmaðurinn fékk extra viðbót af rommi það kveldið.
Þessi maður kom í heimsókn (farþegin) á held 30 ára afmæli Selfossflugvallar 2004 og rifjaði upp þessa sögu.
kv,Gaui K.
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 31. Jan. 2007 22:52:32
eftir Messarinn
Mig minnir að Þorsteinn Elton Jónsson hafi minnst á þessa stél farþega í bókinni sinni he he
Vel á minnst þá átti gamli maðurinn "Moli" sem sagði mér þessa sögu sem um er rætt,heima á Selfossi og átti þar einbýlishús með tvöföldum bílskúr
sagðann. Gömlu hjónin fluttu til Akureyrar fyrir um 8 árum síðan þar sem dóttir þeirra býr hér.
Næst þegar ég sé hann þá ætla ég að spyrjan nánar um þetta krass í vestmanneyjum.
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 31. Jan. 2007 23:56:45
eftir Pitts boy
HEEE mig grunar sterklega hver maðurinn er ég hringdi í vin minn til að finna hans rétta nafn en það fór eins fyrir honum og mér hann mundi ekki hans fulla nafn en hann var alltaf kallaður Gústi Rusl hér á Selfossi. Ég kynntist honum meðan hann bjó hér af því að hann kom ansi oft í heimsókn þar sem ég vann og hann !!KANN!! allavega að segja sögur

(Eða einsog Magnús Magnússon sjónvarpsmaður sagði einu sinni Sögur þurfa ekki endilega að vera sannar það skiptir meiramáli að þær séu góðar

) ég man aldrei eftir að hafa heyrt að spitfire hafi verið staðsett í Kaldaðarnesi ég hef lesið mikið um hersetuna þar en minnist ekki að hafa heyrt um það.
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 31. Jan. 2007 23:57:59
eftir Siggi Dags
Góðar forvitnilegar slóðir o.s.fr....
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 22. Feb. 2007 00:19:08
eftir Sigurjón
Sælir félagar,
Ég vil byrja á því að óska ykkur til hamingju með mjög líflegt og skemmtilegt spjallborð. Ég er ekki módel maður sjálfur, en því hefur verið hótað að kenna mér að fljúga í sumar hvort sem mér líkar betur eða verr!
Allavega, ef ennþá er einhver áhugi á þessu þræði, þá get ég frætt ykkur á því að vélin sem fórst í Vestmannaeyjum var Curtiss P-40 frá 33rd Pursuit Squadron USAAC. Vélin endaði í vesturhlíð Helgafells. Ef einhver hefur áhuga á frekari upplýsingum er ekkert annað að gera en taka upp símann og hringja í nafna minn Sigurjón Einarsson fyrrverandi prófdómara hjá FMS, en hann var polli í Eyjum á þessum tíma og man eftir þessu.
Sigurjón
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 22. Feb. 2007 01:46:43
eftir Sverrir
Velkominn Sigurjón alltaf gaman að góða menn á vefinn sérstaklega þegar þeir luma á svona vitneskju.
Get ekki ímyndað mér annað en þér eigi eftir að líka vel við lærdóminn í sumar.
Nafni þinn var einmitt prófdómari hjá mér þegar ég tók prófið í febrúarmánuði fyrir alltof mörgum árum síðan.

Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 22. Feb. 2007 21:48:37
eftir Óli Kr
sælir strákar, Ég sé að Sigurjón hefur fundið lausnina Á spitfire málinu mikla, þetta var p-40 orustuvél flugmaðurinn var Mark J Mourne ef einhver skyldi kannast við piltinn hann bjargaðist í fallhlíf en vélinn hrapaði norðan í Helgafellið þetta var 10 apríl 1944 önnur vél fór í sjóinn 4 mai 1944 síðdegis 3 mílur frá eyjum og fórst flugmaðurinn John W Biglow. Ég las þetta í bók sem heitir styrjaldarárin á suðurlandi eftir Guðmund Kristinsson stór merkileg bók sem allir ættu að lesa, þá kveð ég að sinni góðar stundir.
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 22. Feb. 2007 23:01:43
eftir Messarinn
Frábært að heyra. gamli maðurinn "Gústi rusl" (ef það er hann) hefur ekki sést ennþá í vinnuni hjá mér svo þetta mál hefur legið niðri þangað til núna
þökk sé ykkur að það leystist. Gaman væri að fá myndir af WWII flugvélum sem voru hér á landi ef þið hafið tök á því.P40 t.d. og spurning hvort Spitfire hafi nokkurn tíman verið hér á landi???
Regards
Re: Spitfire krass í Vestmanneyjum 1943
Póstað: 23. Feb. 2007 00:33:18
eftir Sverrir