Futaba 2,4 GHz

Eru ekki allir í stuði!?
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=TF-KÖLSKI]En maður er ekki með neina sérstaka tíðni á þessu 2,4 GHz er það? hvað gerir maður þá á melonum?[/quote]
Byrjar daginn með því að fara með stýringuna sína til Gauja og dílar við hann um hvernig fyrirkomulagið verður. Það verður væntanlega þannig að allir skila inn stýringunum og fá þær út þegar þeir eru með flugtíma.
Sjá meira um þetta á FMFA vefnum: http://new.flugmodel.is/?page_id=179
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11501
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir Sverrir »

[quote=Björn G Leifsson]Nú og fyrst Herr Sailer (Wolfgang) frá Þýskalandi þorir að treysta þessu fyrir F104 vélinni sinni sem er aðeins 3,7 metra löng þá ættum við ekki að þurfa að hafa áhyggjur, eða hvað?[/quote]
Bahh, skítt með lengdina hún er með minna vænghaf en gamli .25 trainerinn minn ;)

[quote=Björn G Leifsson][quote=TF-KÖLSKI]En maður er ekki með neina sérstaka tíðni á þessu 2,4 GHz er það? hvað gerir maður þá á melonum?[/quote]
Byrjar daginn með því að fara með stýringuna sína til Gauja og dílar við hann um hvernig fyrirkomulagið verður. Það verður væntanlega þannig að allir skila inn stýringunum og fá þær út þegar þeir eru með flugtíma.
Sjá meira um þetta á FMFA vefnum: http://new.flugmodel.is/?page_id=179[/quote]
Sjá einnig http://frettavefur.net/Forum/viewtopic. ... 8890#p8890 varðandi 2.4 stýringar á Akureyri.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3675
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir Gaui »

[quote=TF-KÖLSKI]En maður er ekki með neina sérstaka tíðni á þessu 2,4 GHz er það? hvað gerir maður þá á melonum?[/quote]
Þú bara skilar inn sendinum þínum þegar sendagæslan opnar og flýgur síðan óhræddur þegar þú vilt.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
tf-kölski
Póstar: 125
Skráður: 19. Apr. 2007 16:34:21

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir tf-kölski »

Sweeet:D en spáin er ekki það góð, verður eitthvað flogið?:S
Driving is for people who can't fly!
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir Agust »

Original Futaba modular eru að streyma inn hjá Tower þessa dagana.

Sjá hér
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Gaui
Póstar: 3675
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir Gaui »

[quote=TF-KÖLSKI]Sweeet:D en spáin er ekki það góð, verður eitthvað flogið?:S[/quote]
Galdurinn er að vera ekkert að skoða þessar heimskulegu spár. Maður bara tekur því veðri sem gerist á laugardaginn og skemmtir sér hvernig sem það verður.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3675
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir Gaui »

[quote=Agust]Original Futaba modular eru að streyma inn hjá Tower þessa dagana.[/quote]
Passið ykkur á að panta þetta síður frá Ameríku -- það er örugglega ekki CE merkt og þá hirðir Tollurinn það af ykkur.

Ef pantað er frá Evrópu, þá verður það að vera CE merkt til að þeir megi selja það.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
tf-kölski
Póstar: 125
Skráður: 19. Apr. 2007 16:34:21

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir tf-kölski »

[quote=Gaui][quote=TF-KÖLSKI]Sweeet:D en spáin er ekki það góð, verður eitthvað flogið?:S[/quote]
Galdurinn er að vera ekkert að skoða þessar heimskulegu spár. Maður bara tekur því veðri sem gerist á laugardaginn og skemmtir sér hvernig sem það verður.[/quote]
Marr nennir ekki að vera splæsa í hótelherbergi fyrir fíluferð er það?:P
Driving is for people who can't fly!
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11501
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir Sverrir »

Tæknilega séð má ekki kaupa hvaða módúl sem er og setja í stýringuna.

Stýringin og módúlin eru CE vottuð sem heild, þ.e.a.s. tryggt er að í sameiningu uppfylli þessi tvö tæki CE kröfur.
Þannig að ef menn ætla að vera 100% löglegir(t.d. í tryggingamálum) þá þarf að vera búið að votta viðkomandi módúl og stýringu til að heildin teljist vera CE vottuð.
Því væri ekki verra að fá módúl frá sama framleiðanda og stýringin er.

Annars eru margir framleiðendur sem selja tæki á alheimsmarkaði farnir að telja upp þá staðla sem tækin uppfylla, skoðið t.d. straumbreyta með fartölvum, þar er örugglega minnst á að tækið uppfylli CE/FCC reglugerðir.

[quote=TF-KÖLSKI][quote=Gaui][quote=TF-KÖLSKI]Sweeet:D en spáin er ekki það góð, verður eitthvað flogið?:S[/quote]
Galdurinn er að vera ekkert að skoða þessar heimskulegu spár. Maður bara tekur því veðri sem gerist á laugardaginn og skemmtir sér hvernig sem það verður.[/quote]
Marr nennir ekki að vera splæsa í hótelherbergi fyrir fíluferð er það?:P[/quote]
Aldrei fýluferð að mæta á mannfögnuð, sérstaklega ekki módelmanna!
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Futaba 2,4 GHz

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=TF-KÖLSKI]...
Marr nennir ekki að vera splæsa í hótelherbergi fyrir fíluferð er það?:P[/quote]
Hmmmm.... Hótel hyrnan kostar ekki neitt. Og ef þú tekur með tjald þá ertu í svítunni ;)
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Svara