Síða 2 af 2
Re: 23.03.2007 - Tveggja hreyfla fjör
Póstað: 24. Mar. 2007 17:45:38
eftir Offi
Þetta verður allavega falleg vél... og endist vonandi sem lengst. Ég sé hana þegar ég sæki möffinspokana mína hjá þér í vor! Verið duglegir í myndunum, drengir.
Re: 23.03.2007 - Tveggja hreyfla fjör
Póstað: 24. Mar. 2007 17:55:56
eftir kip
Björn, ætli ég taki ekki með mér ziroli teikningar út í skóg fljótlega og felli eina beina furu eftir að ég flyt í nýju íbúðina sem var gagngert keypt til að hafa smíðaaðstöðu. Landgræðslumerkið og fleira var ég búinn að prenta með vaxlitaprentara og ætlaði að líma á með bókaplasti en mér var bent á að heppilegra væri að prenta beint á límmiða og setja svo glæru yfir og það geri ég.
Re: 23.03.2007 - Tveggja hreyfla fjör
Póstað: 24. Mar. 2007 18:19:56
eftir Björn G Leifsson
Ef ég kemst einhvern tíma á þing þá verður eitt af fyrstu verkunum að koma á
verkstæðisstyrk fyrir flugmódelfíkla.
Svona hliðstætt bílastyrk fyrir fatlaða...
Re: 23.03.2007 - Tveggja hreyfla fjör
Póstað: 25. Mar. 2007 02:40:43
eftir Birgir
Björn. Einhvernveginn fannst mér að þetta væri góð íslensk þýðing á hugtakinu .. Scratch built...
En annars frábær þráður og ég hlakka til að sjá þessa vél fljúga !
Biggi...