Edge 540T frá Will Hobby

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Eiður
Póstar: 116
Skráður: 17. Ágú. 2006 20:24:44

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Eiður »

jæja offi, er þessi til sölu þegar hún er tilbúinn???
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Allt er falt fyrir rétt verð! ;)
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Það náðist nú ekki að gera mikið í dag... og þó! Hlutirnir taka bara sinn tíma. Ég klippti niður eldsneytisslöngu og setti klunkinn á og stillti í rétta lengd í tanknum, tróð áfyllingarröri og bakþrýstingsröri í og skrúfaði svo tappann í. Merkti að sjálfsögðu hvað er hvað, svo ekki fari allt í steik ef Eiður þarf að skipta um slöngur seinna meir! ;)

Mynd
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Ja, ég skal segja ykkur það... ég komst í tímavél....! Hún virðist vera að dæla út korterum mér að kostnaðarlausu. Brún, flöt og fæst í Rúmfatalagernum á slikk...!

Allt í einu var bensíntankurinn kominn í, svona líka pikkfastur!

Mynd

Svo skaust throttle servóið í á korteri og tæplega það

Mynd

Næsta sem gerðist var að mótorinn skrúfaðist á!

Mynd

Og svo áður en maður vissi af þá hafði heddið farið af mótornum og cowlingin á... og allt smellpassaði auðvitað, þökk sé mælingadeildinni á Hnit!

Mynd

Mynd
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
maggikri
Póstar: 5881
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir maggikri »

Þvílíkt tæki Offi ! Kominn með gripinn heim. Ekki mikið annað að gera en setja saman flugvélar núna í þessu veðra víti. Var samt að spá í að fara út á völl þó að það sé hvasst og rigning(á morgun) Verð í bandi ef ég fer. Áttu ekki hlífðarpoka á fjarstýringuna(frá Þresti).

Kv
MK
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Já, sko... þú tókst eftir tímavélinni (stofuborðinu)! ;)
Hún verður sallafín... og er í svíalitunum, auðvitað! :rolleyes: Mála á hana 5-0 og kannski maður fái þá IKEA til að sponsa? Nýtt stofuborð til að smíða á? :lol:

Mynd

Mynd
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
maggikri
Póstar: 5881
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir maggikri »

Stórglæsileg vél. Kemur skemmtilega á óvart stór og mikil vél með 120 mótor, þú ert svo stórtækur Offi. Ég verð að kaupa þessa nema að Eiður sé búinn að versla hana.

kv
MK
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Við ræðum það í rólegheitunum, félagi. En ég nældi mér í nokkur korter í kvöld eftir fínan fund hjá Þyt, þar sem slatti af módelum sást á lofti. En nú fer að síga á seinni hlutann af Korterinu... ég er rétt að rota þetta verkefni.

Ég byrjaði á smá uppskurði og fjarlægði lok sem er yfir servóinu fyrir hliðarstýrið og opnaði svo rifurnar þar sem armurinn kemur í gegn. Ég átti ekki nógu lítið straujárn til að geta strauja inní rifurnar, svo ég hélt borðhníf að straujárninu og hitaði hann og straujaði svo með honum. Virkaði fínt.

Mynd

Mynd

Svo setti ég servóið í og arminn á, eftir að hafa miðjað servóið með fjarstýringunni.

Mynd

Og svo skrúfaði ég lokið á sinn stað á eftir.

Mynd

Svo klippti ég canopíuna út og mátaði við og skrúfaði hana svo fasta.

Mynd

Þau eru ekki mörg handtökin sem eftir eru í Korterinu.
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Passamynd
Gaui
Póstar: 3772
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Gaui »

Offi

Ein smá aðvörun: settu fleiri skrúfur í framendann á canópíunni, því að ef vindurinn kemst undir, þá er þessi pía farin eins og svo margar aðrar. Hugsanlega geturðu líka sett límban af pínnu niður á framhluta módelsins svo enginn vindur komist undir.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Offi
Póstar: 348
Skráður: 28. Nóv. 2006 22:23:21

Re: Edge 540T frá Will Hobby

Póstur eftir Offi »

Já, takk fyrir þetta. Ég ætlaði að líma canópíuna niður að framan. Það eru alltaf smá glennur þarna undir og hún fer í fyrsta flugi ef maður lokar þessu ekki! Point taken!
The chance of survival is proportional to the angle of arrival.
Svara