Síða 12 af 16
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 5. Júl. 2024 17:42:52
eftir Árni H
Verðum við ekki að þvívíddarprenta nokkrar hænur í skala?
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 5. Júl. 2024 20:41:18
eftir Gaui
Það væri ekki verra, Árni. Skalinn er 1:4.
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 6. Júl. 2024 11:58:31
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 102
Það er ótrúkegt að maður hamast í marga klukkutíma að reikna út hvað á að mála og hvað ekki og maska allt aftur á bak og áfram. Svo tekur það bara 10 mínútur að sprauta málningunni á og rífa allt límbandið af aftur. Annars er þetta bara flottur blár litur.
- 20240706_110331.jpg (136.16 KiB) Skoðað 3217 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 8. Júl. 2024 11:48:23
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 103
Ein umferð af hvítu á skrokkinn.
- 20240708_100328.jpg (133.77 KiB) Skoðað 3197 sinnum
Textinn á vængendanum. Ég skoðaði myndir af FRUnni vandlega og komst að því að Arial er líkast þessum stöfum, svo ég prentaði þetta á sérstakan pappír sem ég get losað með vatni og límt á vængendann. Það er allt hægt nú til dags.
- 20240708_102216.jpg (136.39 KiB) Skoðað 3197 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 9. Júl. 2024 13:32:54
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 104
Ég lagði FRÚna á hægri hliðina og festi vinstri vænginn á hana. Svo merkti ég staðsetningu og lag feringanna við stífurnar.
- 20240709_102050.jpg (133.91 KiB) Skoðað 3170 sinnum
Ég setti rör yfir hausinn á skrúfunni og límdi það fast.
- 20240709_102058.jpg (136.49 KiB) Skoðað 3170 sinnum
Bláa límbandið á að gefa lag feringarinnar þegar ég steypi það upp. Ég setti líka límband á festinguna sjálfa til að hún festist ekki innan í feringunni. Svo makaði ég Isopon P-38 á stífuna og skrokkinn þar sem feringin er. Ég gerði þetta í nokkrum atrennum.
- 20240709_104031.jpg (138.58 KiB) Skoðað 3170 sinnum
Þegar fyllirinn var orðinn harður gat ég losað stífuna af og pússað hann til þar til réttu lagi var náð. Nú er bara að setja rauðan fylli á þetta og svo fínpússa og grunna.
- 20240709_120204.jpg (133.7 KiB) Skoðað 3170 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 12. Júl. 2024 12:04:34
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 105
Nú þarf að ganga frá stífufestingunum undir vængina. En til þess þarf ég að leggja FRÚna á bakið.
- 20240712_100641.jpg (137.3 KiB) Skoðað 3072 sinnum
Hér er ég búinn að merkja feringuna og setja rör fyrir skrúfjárnið. Ég átti ekki nægilegt af kopar rörum, svo ég setti plaströr í staðinn. Ég uppgötvaði núna að feringin er ekki nógu stór, svo ég bætti við hana út-megin við stífuna.
- 20240712_100654.jpg (141.29 KiB) Skoðað 3072 sinnum
Svo sullaði ég P-38 á stífuna í nokkrum atrennum. Ég ætla að leyfa þessu að harðna til morguns áður en ég byrja að pússa það til.
- 20240712_110301.jpg (144.16 KiB) Skoðað 3072 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 15. Júl. 2024 13:10:10
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 106
Það er fering utan um hjólastellið upp við skrokkinn og ég byrjaði á því að merkja hvar hún ætti að vera.
- 20240715_092153.jpg (125.37 KiB) Skoðað 2698 sinnum
Svo setti ég límband (P-38 festist eiginlega ekki við þetta gula límband) og sullaði svo P-38 á staðinn. Spjöldin tvö eru þarna til að viðhalda samskeytunum á lokinu yfir stellið.
- 20240715_094702.jpg (136.7 KiB) Skoðað 2698 sinnum
Og svo er hellingur af pússeríi. Sem betur fer á ég pússitromlu á Proxxon handfræsarann og hún kom sér vel þarna.
- 20240715_105010.jpg (140.25 KiB) Skoðað 2698 sinnum
Hér er feringin neðan frá.
- 20240715_105016.jpg (142.86 KiB) Skoðað 2698 sinnum
Þegar allt var orðið sæmilega hart og ég búinn að pússa það mesta, þá gat ég losað feringarnar frá. Annar hluti þeirra límist svo við hjólastellið og litli parturinn festist á lokið. Þannig getur hjólastellið gengið til í harkalegum lendingum án þess að brjóta feringuna.
- 20240715_115159.jpg (139.73 KiB) Skoðað 2698 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 18. Júl. 2024 12:44:42
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 107
Hér er ég búinn að líma feringarnar á stellið og svo taka stellið af. Hér vantar smá fylliefni og grunn og svo má mála.
- 20240717_094017.jpg (134.31 KiB) Skoðað 2614 sinnum
Búinn að sprauta með hvítu.
- 20240718_110645.jpg (133.42 KiB) Skoðað 2614 sinnum
Þetta er lokið yfir (undir) hjólastellið þar sem það festist á skrokkinn. Feringarnar eru komnar á endana og búið að sprauta smá.
- 20240718_110702.jpg (146.19 KiB) Skoðað 2614 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 29. Júl. 2024 11:47:36
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 108
Ég er búinn að liggja í flensu og kvefpest í rúma viku og hef tæplega getað staðið undir sjálfum mér, hvað þá smíðað fugmódel (þetta er ekki COVID -- ég gáði). Nú ætla ég að reyna að halda áfram og það næsta í röðinni er að setja mótorinn á, tankinn í og tengja þetta allt.
Ég fékk 47 mm langar stultur sem þeir félagar í Slippnum renndu fyrir mig og það kostaði mikið bras að koma gadaróm fyrir í boxinu, aðallega vegna þess að ég er ekki með mjög nettar hendur. Það var eins gott að ég var ekki búinn að setja framrúðuna í.
- 20240729_104448.jpg (134.12 KiB) Skoðað 2222 sinnum
Og svo fór mótorinn á. Fyrir þá sem vilja vita, þá er þetta RCGF Stinger 30T.
- 20240729_110603.jpg (139.58 KiB) Skoðað 2222 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 30. Júl. 2024 11:52:33
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 109
Orkan hjá mér er ekki enn komin á fullt, svo það var lítið gert á verkstæðinu í morgun. Ég boraði heilmikið gat á eldvegginn fyrir slöngur og leiðslur og skrúfaði kveikjuna á hliðina á mótorboxinu. Svo seti ég rör og tilheyrandi í bensíntankinn og kom honum fyrir á sínum stað. Nú vantar mig bara bensínslöngur.
- 20240730_095951.jpg (133.8 KiB) Skoðað 2169 sinnum