Síða 13 af 13
Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 12. Jún. 2025 12:33:25
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 112
Ég notaði breitt límband til að gera skapalón af rúðunum sem koma fyrir aftan hurðirnar. Það er síðan límt á plastið og skorið út og formað þar til það passar nákvæmlega.

- 20250612_113239.jpg (142.84 KiB) Skoðað 127 sinnum
Hér eru rúðurnar komnar í og límdar með rúðulími. Það tekur yfirleitt nokkra klukkutíma að þorna, svo ekkert fleira verður gert fyrr en á morgun.

- 20250612_115018.jpg (138.89 KiB) Skoðað 127 sinnum
Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 14. Jún. 2025 11:38:59
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 113
Ég skar 9mm breiðar ræmur úr áli og festi á gluggann þar sem hægt er. Ég notaði tvöfalt límband til að halda ræmunum á meðan ég boraði 0,6mm (og svo 0,8mm þegar borinn brotnaði), undirsinkaði með 2,2mm bor og skrúfaði svo agnar smáar skrúfur frá
Mikka Ref.

- 20250614_093538.jpg (142.38 KiB) Skoðað 90 sinnum
Hér sést hvernig þetta lítur út. Ég prentaði Slysavarnarfélagsmerkið á venjulegan pappír á meðan ég bíð eftir vantsmerkispappírnum frá útlöndum. Stærðin virðist nokkuð góð, en það sést ekki alveg á meðan svörtu línurnar vantar.

- 20250614_110441.jpg (140.51 KiB) Skoðað 90 sinnum
Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 16. Jún. 2025 12:06:57
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 114
Losaði alla aukahluti af skrokknum og penslaði svo parkettlakki á alla fleti.

- 20250616_094847.jpg (137.49 KiB) Skoðað 55 sinnum

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP
Póstað: 18. Jún. 2025 13:12:30
eftir Gaui
TF-LBP -- dagur 115
Ég dúllaði mér við hægri vænginn og límdi flapsann og hallastýrið á. Ég þarf að fara að huga að skráningarstöfunum undir vænginn og á skrokkhliðarnar. Þeir eru tvílitir, svartir og grænir og ég þarf að finna góðan grænan lit á þetta.

- 20250618_110846.jpg (143.39 KiB) Skoðað 32 sinnum
