Hvar á maður að byrja?
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2010/1266761146.jpg)
Sko bara, þetta gengur bara ágætlega. Upp-og-niður-stöffið orðið fast við snýst-í-hringi-hittið.
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2010/1266761223.jpg)
Frá læknunum fyrir sunnan kom tilaga um að hafa astoð nálægt sér við mótorgerðina og það var svo sannarlega tekið á orðinu. Hér er vandasöm aðgerð í gangi og Árni Hrólfur er til taks með ennisþurrkuna.
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2010/1266761304.jpg)
Þegar vandastuðullinn hækkar með aukinni samsetningu er ekki úr vegi að kíkja ögn í leiðbeiningarnar: „Hvernig var þetta nú? Righty tighty, lefty loosy, eða var það öfugt?“
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2010/1266761418.jpg)
Ótrúlegt en satt! Einum og hálfum tíma seinna (ekki mínútu lengur) er kominn mótor -- og Mummi veit núna allt sem hann þarf að vita um hvernig þeir eru samsettir.
![Mynd](https://spjall.frettavefur.net/myndir/2010/1266761483.jpg)