Síða 13 af 16

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 4. Maí. 2013 10:16:38
eftir Gaui
Flott hjá kallinum! Er þetta bílamálning?

:cool:

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 4. Maí. 2013 10:35:01
eftir Sverrir
Takk og já.

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 4. Maí. 2013 12:51:57
eftir Messarinn
Góður Sverrir

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 4. Maí. 2013 14:44:10
eftir Gaui
Er bílamálningin ekki of hörð fyrir svona dúk, eða setur þú mýkingarefni í hana?

:cool:

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 4. Maí. 2013 15:32:14
eftir Sverrir
Þetta er bara það sama og er sett á stóru vélarnar en jú það er mýkingarefni í þessu. Ef menn rýna vel í miðann á dósinni þá sjást allar þessar helstu upplýsingar um litasamsetninguna, 20% mýkingarefni(forblandað, snilld) og 80% glans. :)

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 4. Maí. 2013 18:14:51
eftir Sverrir
Nokkrir partar að bakast hjá stóru systur.
Mynd

Skrokkurinn í bökunarklefanum og bíður eftir næstu litum.
Mynd

Vængir og vængstífur eru líka mætt í klefann eftir kvöldtörnina!
Mynd

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 8. Maí. 2013 00:22:13
eftir Sverrir
Jæja, ekki hefur maður verið aðgerðarlaus þó póstana hafi vantað! Þar sem ég virðist hafa klárað allan herðinn í landinu þá er vélin komin í málningarhlé fram yfir helgi en það eru bara nokkrir minni hlutir sem þarf að kíkja á. Mestu vinnunni lauk í kvöld, svo er bara að taka utan af pökkunum á morgun!

Eins og sést á ferlinu þá byrjum við á ljósasta litnum og færum okkur yfir í dekkri litina eftir því sem á líður. Það er nefnilega svo mikið auðveldara að þekja ljósa liti með dökkum heldur en öfugt!

Tepi, teipi, teip...
Mynd

Ótrúlegur tími sem fer í ekki flóknara verk!
Mynd

Sullum smá lit á!
Mynd

Mynd

Í góðu yfirlæti í bökunarklefanum.
Mynd

Hér sést greinilega hversu mikil áhrif flúrperur geta haft á liti, þessi mynd er tekin í náttúrulegu ljósi. Aðeins öðruvísi litur en sést hér að ofan!
Mynd

Litur númer þrjú.
Mynd

Mynd

Mynd

Fjórði liturinn mættur á svæðið.
Mynd

Mynd

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 8. Maí. 2013 06:14:47
eftir maggikri
Þetta er gríðarleg "litadýrð".
kv
MK

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 8. Maí. 2013 13:53:57
eftir Sverrir
Já, spennan magnast! ;)

Re: 33% Kaiser Ka-3

Póstað: 8. Maí. 2013 22:04:32
eftir Sverrir
Þá er búið að taka utan af vélapörtunum og það er óhætt að segja að ég sé mjög ánægður með árangurinn! Allar línur skýrar og góðar og engir lekar.

Stélhluti klár í slaginn.
Mynd

Nærmynd af litaskilum, brúnin finnst varla þó hún virðist nokkuðu gróf þarna.
Mynd
Mynd

Vængendi í góðum gír.
Mynd

Framendinn
Mynd

Ég fékk Cecil lánaðann þar sem fákurinn hans er ekki klár enn.
Mynd

Mynd

Hér er hún í öllu sínu veldi.
Mynd

Það verður gaman að sjá hana „svífa“ um loftin blá! :)
Mynd