Síða 14 af 14
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 17. Ágú. 2024 19:28:51
eftir Gaui
Sverrir skrifaði: ↑17. Ágú. 2024 15:38:05Samt betra að hafa það rautt.
Líklega. Athuga það næst. Ég var alveg viss um að það væri hvítt.
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 20. Ágú. 2024 12:04:32
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 118
Ég fékk ábendingu um að gott værii að nota álpappír til að maska módel, svo ég kom við í Kjörbúðinni og náði mér í rúllu af áli. Svo dundaði ég mér við að setja álpappír alls staðar þar sem blá málning á ekki að koma. Geimverurnar geta ekki séð þetta módel. Því miður er veðrið ekki gott: vindur og væta, svo ég get ekki farið út að sprauta. Í staðinn penslaði ég eina umferð af gólflakki neðan á vængina.
- 2024-08-19_064844_20240819_105140.jpg (137.87 KiB) Skoðað 1396 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 20. Ágú. 2024 12:11:35
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 119
Ég notaði tækifærið í morgun og sprautaði blátt, þó veðrið væri frekar kalt og möguleiki á úrkomu.
- 20240820_101608.jpg (144.65 KiB) Skoðað 1396 sinnum
Ég þurfti ekki nema tvær umferðir og þá bar ég FRÚna inn og tók utanaf henni
. Þá kom í ljós að það hafði blætt þó nokkuð undir bláa bílateipið, en nánast ekkert undir gula málaralímbandið. Nú má þetta þorna almennilega og þá get ég sprautað dökk-bláa litinn og byrjað að veðra.
- 20240820_112844.jpg (133.82 KiB) Skoðað 1396 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 20. Ágú. 2024 20:12:19
eftir Sverrir
Er bílateipið 3M og veistu eitthvað um aldurinn á því?
Spyr fyrir forvitnissakir því ég notaði 3M bílateip á
dúkklædda á Ka-3 um árið og það hélt öllu þar.
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 21. Ágú. 2024 07:19:52
eftir Gaui
Sverrir: Bílateipið er ekki 3M og það er langt síðan ég keypti það. Þar stendur hundurinn líklega grafinn í kúnni.
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 21. Ágú. 2024 12:04:52
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 120
Ég límdi lamir í hliðarstýrið, límdi það á stélkambinn og tengdi tog-tog vírana. (SVERRIR - rautt ljós!)
- 20240821_095533.jpg (137.13 KiB) Skoðað 1282 sinnum
Og hæðarstýrin eru líka komin á.
- 20240821_101813.jpg (135.7 KiB) Skoðað 1282 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 22. Ágú. 2024 12:00:41
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 121
Morguninn fór í það að gera FRÚna drulluga og veðraða. Og það versta er að ef maður er staddur svona þrjá metra frá henni, þá sést þetta eiginllega ekki. Hér er olíu pastel leyst upp í terpentínu strokið meðfram plötuskilum, hvítt duft pastel dregið yfir bláa litinn til að fá upplituð og veðruð svæði og ryðmálning á skrúfuhausum.
- 20240822_101758.jpg (131.43 KiB) Skoðað 1246 sinnum
Bláa málningin hefur sprungið undan skrúfuhausunum við framrúðuna og ryð á handfanginu.
- 20240822_105207.jpg (141.66 KiB) Skoðað 1246 sinnum
Það má sjá veðrunina ef vel er að gáð. Ég er að vona að gólflakkið muni gera þetta meira áberandi. En fyrst þarf ég að sprauta dökk-blátt.
- 20240822_113624.jpg (143.85 KiB) Skoðað 1246 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 23. Ágú. 2024 12:00:36
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 122
Ég maskaði fyrir dökk bláa litnum og sprautaði varlega nokkrar umferðir af eins þunnum lögum og ég gat.
- 20240823_095344.jpg (137.66 KiB) Skoðað 1137 sinnum
Skrokkurinn er líklega full málaður. Næst er það gólflakkið og svo þarf ég að fara að gera eitthhvað í sambandi við vélarhlífina.
- 20240823_103503.jpg (143.19 KiB) Skoðað 1137 sinnum
Re: Jerry Bates 1/4 scale Cessna 172 Skyhawk
Póstað: 24. Ágú. 2024 11:18:39
eftir Gaui
TF-FRU -- Dagur 123
Það er komin umferð af gólflakki á allan skrokkinn og ég tók maskann úr gluggunum. Þetta er, semsagt, tilbúið, nema vélarhlífin. Ég ætla að reyna að slást við hana í næstu viku og sjá hvað gerist. Þangað til verða ekki fleiri póstar á þessum þræði. Takk fyrir áhorfið.
- 20240824_103115.jpg (141.69 KiB) Skoðað 1062 sinnum