Síða 15 af 31

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 1. Apr. 2010 08:00:07
eftir Flugvelapabbi
Þetta er flott verkefni hja ykkur og verður skemmtilegt að sja þær i formation en getur verið að Losange mynstrið se ekki i rettum skala (of markir flekkir ?) annars gangi ykkur vel.
Kv. Einar

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 1. Apr. 2010 10:42:03
eftir Gaui
Smá feill, en þar sem við vorum byrjaðir, þá létum við það hafa sig.

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 9. Apr. 2010 00:58:26
eftir jons
Í kvöld mætti ég í skúrinn og málaði sportrendur á skrokkinn.

Mynd

Næst er þá væntanlega álplata ofan á skrokkinn að framanverðu (var næstum því búinn að skrifa "á húddið" :)) og svo hjólastell. Þetta mjakast...

Mummi.

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 11. Apr. 2010 19:09:13
eftir Gaui
Nú skar Mummi til álplötu sem á að koma ofan á framhlutann á skrokknum. Hér er hann að slá smá brún á hliðarnar á plötunni svo hún leggist betur niður.

Mynd

Til að líma álplötuna niður er notað sérstakt lím sem blandað er á staðnum, Grísará Impact Adhesive.

Mynd

Límið er penslað á báða hluta ...

Mynd

... og svo eru hlutarnir lagðir saman eftir að límið er orðið snertiþurrt.

Mynd

Límið tekur um leið, svo það er mikilvægt að allt sitji rétt og vel. Ekki að sjá annað en að Mumminnn hafi gert þetta eins vel og hægt er.

Á meðan var Árni að pússa vænginn sinn.

Mynd

Það lítur út fyrir að hann nái okkur um síðir.

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 18. Apr. 2010 21:28:13
eftir Árni H
Enn mjakast Fokkerarnir áfram. Fokkerinn hans Gauja er kominn á lappirnar og hinir eru stutt á eftir (að minnsta kosti stutt frá):)

Hérna er Fokkerinn kominn á fætur:
Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Ég límdi vængenda á sinn stað og gekk frá festingum fyrir vængstífur á mínum Fokker.

Mynd

Mummi vann í hjólastellinu sínu.

Mynd

Þetta nuddast sem sagt áfram og ég rek lestina að venju og er kominn langt á eftir hinum félögunum eftir Gremlinmillilendinguna. En "Góðir hlutir gerast hægt" eins og kínamennirnir sögðu!

Kveðjur,
Árni Hrólfur

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 25. Apr. 2010 22:43:29
eftir Gaui
Mummi sauð hjólastellið sitt saman:

Mynd

Þetta er ekki flókin smíð þegar maður er búinn að klippa niður alla þá búta sem þarf í stellið og stilla þeim saman í djiggi. En það er eins gott að hafa einbeitinguna í lagi svo maður kveiki ekki í ljósmyndaranum:

Mynd

Og á meðan var Árni að pússa vænginn sinn. Við höldum að hann fari bráðum að klára hann, en hver veit ???

Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 2. Maí. 2010 18:40:48
eftir Gaui
Það er haldið á með Fokkerana. Árni ætlaði að fara að pússa vænginn sinn, svo hann byrjaði á því að setja upp heimavörnina, en þá kom upp smávægilegt vandamál:
Mynd

Tollögur óskast sendar á þennan vef.

Mummi stússaði lengi vel við vængfestingarnar: mældi og mótaði:
Mynd

Lagaði til og festi með væsgrippi:
Mynd

Og silfursauð síðan allt heila gillið saman:
Mynd

Á meðan var Árni að pússa vænginn sinn:
Mynd

Hann segist vera búinn að pússa, en það sást til hans þar sem hann gluðaði Rauðum Djöfli á vænginn, svo það er líklegt að hann þurfi að pússa soltið meira seinna :D
Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 2. Maí. 2010 21:51:56
eftir Óli.Njáll
Það er þetta með hann Árna, er ekki bara að nota aðferðina sem gæti verið ættuð úr Mývatnsveit og gera bara neyslugat á heimavörnina ??????

kveðjur

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 2. Maí. 2010 22:25:09
eftir Gaui K
Sæll Gaui.
Verð að spyrja því mig langar að herma eftir !
Á fokkernum (rödder og hæðarstýri)ertu væntanlega búin að skera niður ræmur og straujað svo yfir til að fá fram áferð undan skrúfum eða draghnoðum eða hvað þetta nú er :) hvernig ferðu að þessu?

kv,Nafni

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 3. Maí. 2010 08:10:14
eftir Steinar
Er þetta ekki bara ræma af dúk og svo dropi af hvítu trélími þar sem hnoð á að vera?????