Árni, Mummi og Óli Njáll komu í morgun og dúlluðu sér í skúrnum. Óli er langt kominn með að klæða Stikk í þennan líka fína lit. Hér er hann að setja neðan á vænginn:
Og Árni hélt áfram að mála feluliti (hann verður að því næstu mánuðina ) Stundum þurfti hann fjórðu hendina til ða geta drukkið kaffið sitt.
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 14. Feb. 2011 23:46:01
eftir Gaui
Hérna er smá slædsjó samsetningur frá janúarsmíðinni í skúrnum á Grísará:
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 26. Feb. 2011 17:55:56
eftir Gaui
Alltaf eitthvað um að vera í skúrnum. Hér eru nokkrar myndir:
Mummi að sulla með glerfíber og epoxy... vonandi harðnar það, því það var allt löðrandi í poxi eftir hann
Stikkarinn hans Óla skríður áfram og er bara kortér í að klárast. Hér er hann að troða græjunum í hann:
Sveinbjörn er byrjaður á Farmhand vængjum. Hér er hann búinn að setja hægri vænginn saman og fergja efri klæðninguna á hann:
Meira seinna
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 26. Feb. 2011 18:19:44
eftir Jónas J
Flottir
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 6. Mar. 2011 21:48:07
eftir Gaui
Nokkrar myndir af því sem fram gengur í skúrnum:
Óli Njáll er farinn að skreyta Stikkinn með svörtum strikum og járnkrossum (meira af því seinna):
Árni er hér að nota gerfi-mótorinn hans Mumma til að búa til annan eins:
Og Mummi er búinn að vera að pússa og fylla og grunna og pússa og grunna og fylla og pússa og grunna ... vélarhlífina á Fokkerinn. Hann fer líklega langt með hana næst þegar hann kemur í skúrinn.
Re: Smíðað á Grísará
Póstað: 13. Mar. 2011 18:24:30
eftir Gaui
Það er enn smíðað á Grísará. Í dag setti Óli servó í vænginn og fékk þau til að virka eins og þau eiga að gera -- Góður !
Mummi er að ganga frá vélarhlífinni á Fokkerinn. Hann klippti til hringlaga álplötu sem hann er nú að hnoða framan á kávlínguna:
Fyrst er borað
Svo fer hnoðið í framan frá og er barið til hlýðni innan frá:
Hann er búinn að lofa að setja þessa vélarhlíf á höfuðið áður en langt um líður.
Árni dundaði sér við að gera nýjan mótor á sinn Fokker -- þ.e.a.s. þrjá sílindra sem standa niður undan vélarhlífinni:
Surtur fylgdist með og sá til þess að allt væri gert eins og á að gera: gæðaeftirlitið!
Sjálfur var ég að saga út nokkur rif (kemur í ljós síðar hvað verður úir þeim) og strákunum fannst eitthvað fyndið við það að ég --gamall maðurinn-- þurfti að fá smá aðstoð til að sjá hvað ég var að gera:
Þessi sjón-auki fæst í Handverkshúsinu og er algerlega ómetanlegur þegar maður er hættur að sjá annað en það sem er augljóst.