Það hefur ekki gefist mikill tími til að sinna Fokkernum upp á síðkastið en í dag var efnað niður í hjólastell o.fl. úr 5 mm píanóvír. Mummi er feti framar og hamast á vængfestingum á sínum Fokker.
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 20. Ágú. 2010 19:54:46
eftir Gaui
Mummi heldur á með sinn.
Hér er hann búinn að stilla skrokknum upp við rétt horn (ja, ekki rétt horn, heldu rétta hornið: -2°) og er byrjaður að setja saman vængstubbinn á milli dekkjanna:
Þegar öll rifin eru komin á sinn stað, þá koma fram- og afturbrún og styrkingar á milli rifjanna:
Þegar þetta er hart má taka stellið undan skrokknum og undirbúa að setja efra skinnið á sinn stað:
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 11. Sep. 2010 15:18:07
eftir Gaui
Nú er Mummi búinn með tréverkið á stellinu og byrjaður að þekja það með glerfíber. Hann er greinilega glaður með þetta:
Og svo eru þeir félagar M&Á byrjaðir að fikta við vélarhlífina (nei, þetta er ekki afmælisterta). Þeir slettu negatíva mótinu á plöggið. Það er spennandi að vita hvort þetta losnar einhvern tíman í sundur aftur.
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 12. Sep. 2010 17:14:48
eftir Gaui
Hér er meira í sambandi við vélrhlífina. Mótið er enn fast á plögginu og það gerir það dálítið erfitt að setja það á höfuðið:
Annars er Árni búinn að brasa hjólastellið sitt saman:
og Mummi er byrjaður að smíða utan um teinana sem halda vængnum á:
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 19. Sep. 2010 20:55:04
eftir Árni H
Enn heldur gamanið og glensið áfram að Grísará. Bresk mús kom í heimsókn, undirritaður skar út hallastýri á Fokker, Gaui smeið Sveitavarg og Mummi málaði á Fokkerinn eftir að hafa gert að bráðinni.
Kv,
Árni H
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 20. Sep. 2010 16:19:53
eftir Páll Ágúst
Flooooootttt
Hvar fenuð þið þetta stykki sem er ofan á gaskútnum?
og var hægt að fá stærri brennara eins og þennan?
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 20. Sep. 2010 18:41:13
eftir Sverrir
Færð þetta á flestum stöðum sem selja suðuvörur, einhverjum bensínstöðvum, N1(Bílanaust), svo einhverjir staðir séu nefndir.
Re: Fokker D.VIII
Póstað: 20. Sep. 2010 22:55:53
eftir Árni H
Er þetta ekki bara úr Byko eða Húsó? Svona gaslampar fást víða. Annars verður Gaui að svara því til hvar hann keypti sinn