Síða 18 af 60

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 31. Mar. 2011 17:04:09
eftir Árni H
Enn er smíðað að Grísará og legið yfir hverri hreyfingu með stafrænu dóti. Í síðustu viku gerðist þetta meðal annars:

Surtur hinn nýi var mátaður í flugstjórnarklefann á Ercoupe.
Mynd

Óli er langt kominn með Stikkinn sinn.
Mynd

Mummi maskar vélarhlíf og býr undir sprautun.
Mynd

Undirritaður vann í strokkum og tókst auðvitað að líma einn rækilega við puttana.
Mynd

Mynd

Surtur eftirlitshundur, sem yfirleitt er hrifnastur af spöðum frá Just Engines, lagði til atlögu við spaða frá MENZ í vöntun á spöðum frá Jústa. Er svo komið að Grísará að farið er að fóðra hundana á spöðum?
Mynd

Kv,
Árni H

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 31. Mar. 2011 17:21:13
eftir Sverrir
Isss Bóbó hans Berta klárar svona spaða á 15 mínútum og rekur svo við lengi á eftir... :D

Mynd

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 31. Mar. 2011 18:51:47
eftir Árni H
Það lítur út fyrir að hún hafi étið eitthvað fleira en bara spaða... :lol:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 31. Mar. 2011 19:51:39
eftir Björn G Leifsson
Ef þetta er ekki flugmódelljósmynd áratugarins þá má ég hundur heita!!!



Mynd


Sverrir, þú vogar þér ekki að breyta sæmdartitlinum mínum í "hundur" :mad:
ég veit þig langar :P

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 17. Apr. 2011 19:05:15
eftir Gaui
Sveinbirni gengur vel að setja saman Farmhand. Hann er kominn með alla parta sem þarf í módelið (stél, skrokk, vængi, hjólastell o.s.frv.) og nú er mótorinn kominn á sinn stað:

Mynd

Þetta er Zenoah 62 -- allir hér fyrir norðan öfunda Sveinbjörn af þessum mótor :D

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 9. Maí. 2011 23:12:40
eftir Óli.Njáll
það var í október 2009 sem ég byrjaði að smíða á Grísará, en það var eftirsmíði á stikk sem þeir félagar höfðu verið að raðsmíða þetta er búið að vera skemmtilegur tími og smíðakennslan allveg til fyrirmyndar ( enda vanir kennarar á ferð )
þetta var upphafið 23 okt 2009
Mynd
Og löngu seinna eða í dag er þetta árangurinn, en liturinn er svooo æðislegur að stafrænatæknin er í vandræðum með hann.
Mynd

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 9. Maí. 2011 23:39:10
eftir Gaui
Nú er bara að sjá hvort þetta flýgur :D

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 9. Maí. 2011 23:49:34
eftir Sverrir
[quote=Óli.Njáll]Og löngu seinna eða í dag er þetta árangurinn, en liturinn er svooo æðislegur að stafrænatæknin er í vandræðum með hann.[/quote]
Til hamingju, lítur vel út!

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 10. Maí. 2011 10:15:51
eftir Árni H
Þessi Stikk er sko í galadressinu - stórglæsilegur!

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 10. Maí. 2011 10:31:22
eftir Haraldur
Er þetta ekki bara: DiskoStikk ?