Síða 19 af 60

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 10. Maí. 2011 14:24:11
eftir Jónas J
Glæsilegur Stikk. Töff litur á honum :)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 10. Maí. 2011 14:30:48
eftir Björn G Leifsson
Spurning hvort það þurfi ekki að bíða fram yfir varptímann með taka þetta út undir bert loft?

:D hehe :lol:

Flott vél Óli.

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 10. Maí. 2011 18:26:51
eftir einarak
Þið eruð nú alltaf að videoblogga þarna fyrir norðan, svo ég ætla setja inn smá "request" á svona video-tútorial hvernig maður klæðir vængi með filmu... mér hefur nefnilega ekki heppnast það sérstaklega vel hingað til...

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 10. Maí. 2011 19:04:09
eftir Kjartan
Til hamingju Óli

Þessi er flottasur.

KV Kjartan

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 10. Maí. 2011 20:42:56
eftir Óli.Njáll
Þakka allar hamingjuóskirnar næst er svo að finna hentugan góðviðrisdag til að prufa flughæfnina

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 11. Maí. 2011 19:35:39
eftir Gaui
[quote=einarak]... smá "request" á svona video-tútorial hvernig maður klæðir vængi með filmu....[/quote]
Það má skoða þetta -- vantar bara væng til að klæða.

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 19. Maí. 2011 23:10:28
eftir Gaui
Óli Njáll er langt kominn með að klára Gremlin og í kvöld byrjaði hann að klæða hann. Einhver vandræðagangur var nú samt í kallinum, kannski vegna þess að liturinn er frekar áberandi dayglo gulur:

Mynd

Þar sem Óli þurfti greinilega smá aðstoð stóð ekki á vinnufúsum höndum að hjálpa til:

Mynd

En vegna þess hve liturinn var sterkur fækkaði þeim þar til Mummi var einn eftir. Hann reyndi að loka augunum ...

Mynd

... en þetta var bara of mikið fyrir hann, enda einföld sál með viðkvæm augu.

Mynd

Bæði Mummi og Árni sködduðust af þessum skæra lit og þurftu að þreyfa sig út á Akureyri.

Mynd

En Óli er hreystimenni hið mesta og kippir sér ekki upp við sterka liti:

Mynd

Við bíðum spenntir eftir að Gremlininn klárist ;)

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 20. Maí. 2011 16:01:25
eftir Jónas J
Menn eiga ekki að vera að vinna með svona varasöm efni sem geta verið skaðleg fyrir þig og þá sem eru nálægt þér ha ha ha :)

Þetta er fínn litur, við Eysteinn erum búnir að prófa svipaðan lit sem virkaði MJÖG vel. he he he he he he Mynd

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 20. Maí. 2011 20:04:32
eftir Björn G Leifsson
Það á nú alveg eftir að sjá hvað náttúruverndarráð segir... ef þeir einhvern tíma komast í málið þeas.

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 22. Maí. 2011 14:14:22
eftir Gaui
Enn mæta góðir á Grísará, en líklega var laugardagskvöldið eitthvað erfitt hjá Mummanum: hann sofnaði fram á Fokkerinn:

Mynd

Árni skemmti sér mikið við að sprauta hvíta litnum á stélið. Hann er farinn að sjá fram á að geta flogið honum á þessum áratug!

Mynd

Og nú er komið fram hvaða litur á að vera með þeim glóðgula á Gremlininum: Sanseraður fjólublár :D

Mynd

:cool: