Síða 19 af 31

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 15. Jan. 2011 12:27:03
eftir Messarinn
Laghentur maður hann Árni ;)

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 23. Jan. 2011 19:13:20
eftir Gaui
Mummi er ekki síður laghentur, enda er hann búinn að fabríkera þennan líka flotta gerfimótor:

Mynd
:cool:

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 23. Jan. 2011 20:58:37
eftir Eysteinn
Heldur Mummi á gerfimótornum með augunum? Frábær mynd :)

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 23. Jan. 2011 21:00:35
eftir Messarinn
Hehe Góður

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 2. Feb. 2011 23:16:28
eftir Gaui
Mummi þurfti að fara út í myrkrið í Eyjafirði til að sprauta glæru. Hann fékk leiðbeiningar frá Árna, en spurning hversu mikið ljósið af gáfum hans gat lýst.

Mynd
:cool:

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 6. Feb. 2011 15:03:25
eftir Gaui
Árna gengur ágætlega. Hann er að mála bletti heima hjá sér (og verður því að setja inn myndir af því sjálfur) og hér á Grísará er hann byrjaður að hugsa um græna málningu:

Mynd

:cool:

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 6. Feb. 2011 18:02:09
eftir Árni H
Ég held að maður sé að ofsmíða þessar orrustuvélar. Smágalli og maður hleypur í P38 túbuna :)
Hérna er kíttað í galla á vængenda:
Mynd

Þá er vængurinn að verða klár fyrir málningu - bara eftir að fitta betur saman miðjuna og vængendana
(og fleira smávegis).
Mynd

Messerschmittbæklingurinn er bara til að minna mig á gæluverkefnið, sem er hálfsmíðað heima
í geymslu. Það er vélin sem Leutnant Gottfried Weiroster hlaut frægð og frama fyrir að fljúga en því
miður mætti hann líka örlögum sínum í sömu vél. Meira um það síðar.

Takið hins vegar eftir því hversu vel bónaður Messerschmittinn hans er!
Mynd

Kveðjur,
Árni Hrólfur

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 8. Feb. 2011 23:42:04
eftir Messarinn
Já þjóðverjarnir voru mikilir svifflugmenn og eru það enn í dag, og vissu að vel bónuð flugvél myndaði minna drag. Messarinn hans Weiroster var reyndar sprautaður með high gloss glæru, (stendur í bókum mínum). Weiroster var skotin niður í Bf109 G-5/Y4 W.nr 26112 "Black<0" af varnarbyssum B17 sprengjuflugvéla USSAF yfir Jadebusen Germany 26 nóvember 1943. hann skaut niður 6 bandarískar flugvélar í 19 árásar ferðum.
Hérna er Bf109 G-5/R6 W.nr.15912. Green 3 í flugsveit JGr.50 sem var sérstaklega stofnuð til að eiga við hinar há og hraðfleygu de Havilland Mosqito (wooden wonder) flugvéla RAF. sem flugu yfir Þýskaland einungis vopnaðar myndavélum.
Mynd


Er þetta ekki bæklingurinn minn??
Svo bara halda áfram með Messerschmitt-inn Árni...

P.s. númerið "3" á að vera grænt með hvítum brúnum, en ekki rautt eins og er á myndinni.

MessarinnMynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 26. Feb. 2011 16:54:42
eftir Gaui
Mummi býr til vélarhlíf:



Framhald í næsta blaði.
:cool:

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 27. Feb. 2011 16:21:54
eftir Gaui
Og hér kemur framhaldið:



:cool: