Síða 3 af 5

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 1. Jan. 2008 19:12:27
eftir Messarinn
Áður enn ég lokaði hjólaskálinni þá festi ég servo snúrurnar með því að nota límbyssu sem er hreinlega bara hitabyssa með plaststauk í gegnum sig og bræðir hann svo út kemur sjóðandi heitt lím og er með allveg frábærri viðloðun. Nauðsynlegt er að lausar snúrur inní vængjum séu vel festar því lausar snúrur virka eins og sagir í víbringnum á flugi og vængurin gæti í versta falli brotnað á flugi.
Mynd

Næst var að finna sér eitthvað til að klæða hjólaskálina að innan og fyrir valinu var millimeters þykkur flugvélakrossviður sem mikið er notaður í klæðningar á fullvaxta flugvélum. það er einmitt mjög gott að sveigja hann í hring svo var bara að máta og pússa þangað til krossviðurinn fittaði
og límdur síðan í með Zap Gap, svo málað í lokin
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 1. Jan. 2008 19:46:05
eftir Sverrir
Klikkar ekki hjá kallinum :cool:

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 1. Jan. 2008 21:56:38
eftir einarak
Þetta er fullorðins!

Og eftir á að hyggja er það sennilega rétt með ventlasístemið að það er eflaust ekkert meira viðnám í þessum snúningssílender mótor, því það eru jú enginn knastás að snúa, engar undirlyftur, engir rockerarmar og engir stífir ventlagormar til að þrísta saman.

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 1. Jan. 2008 22:12:34
eftir Messarinn
Ég er ekki sérfræðingur í þessu enn mér finnst þessi mótor skara framúr í 4 gengis mótorunum í practis. þó að Saito mótorarnir beri af í fegurð og á ég nokkra svoleiðis.
einnig er snilldin eina hvernig þessir RCW mótorar eru settir í gang.....
Mynd

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 2. Jan. 2008 00:29:10
eftir Gaui
Alger snilli Gummi. Haltu áfram -- þetta er farið að verða spennandi.

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 2. Jan. 2008 10:16:40
eftir knutur
[quote=Gummi]Ég er ekki sérfræðingur í þessu enn mér finnst þessi mótor skara framúr í 4 gengis mótorunum í practis. þó að Saito mótorarnir beri af í fegurð og á ég nokkra svoleiðis.
einnig er snilldin eina hvernig þessir RCW mótorar eru settir í gang.....[/quote]
Þarna erum við farnir að tala saman Gummi!!startað í gang eins og Þyrlu :D

smá djók varð að skjóta þessu inn ;) gamann að fylgjast með.....

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 2. Jan. 2008 11:52:54
eftir Árni H
Þetta er flott hjá þér! Áfram með smjörið (eða ZAPPIÐ) :)

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 2. Jan. 2008 12:01:28
eftir Sverrir
Ég leyfi mér að minna á þennan þráð > http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=99
og þá sérstaklega þennan póst og næstu á eftir > http://frettavefur.net/Forum/viewtopic. ... 2632#p2632

Bara verst að vídeóið er ekki virkt lengur en Gummi reddar því vonandi :)

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 2. Jan. 2008 12:44:58
eftir einarak
Hvernig gengur með Messerschmit?

Re: YT Spitfire Mk XIV

Póstað: 3. Jan. 2008 00:19:28
eftir Messarinn
[quote=knuturgh][quote=Gummi]Ég er ekki sérfræðingur í þessu enn mér finnst þessi mótor skara framúr í 4 gengis mótorunum í practis. þó að Saito mótorarnir beri af í fegurð og á ég nokkra svoleiðis.
einnig er snilldin eina hvernig þessir RCW mótorar eru settir í gang.....[/quote]
Þarna erum við farnir að tala saman Gummi!!startað í gang eins og Þyrlu :D

smá djók varð að skjóta þessu inn ;) gamann að fylgjast með.....[/quote]
Ble knútur
ég er meira að segja búinn að versla mér eitt stk þyrlu
Mynd