Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Ég er margoft með farsíma í Katana frá Krill, t.d. eru flestar þessar mynda teknar með farsíma sem var í vélinni í það og það skiptið Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir kip »

Það er rétt!
Er komin áætluð dagsetning á jómfrúarflugið? Flugkomuhelgin hjá FMFA? :D
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Það verður vonandi vel fyrir þann tíma ;) Jafnvel snemma í júní ef pláneturnar raða sér rétt upp :D
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Hér sjást loftnetin tvö og kaplarnir aftur í stél.
Mynd

Vængurinn er stilltur af með þessum skinnum, þeim er tyllt með sýrulími fram yfir reynsluflugið, svo tekur Hysol við.
Mynd


Ég vissi varla hvort ég væri fyrir sunnan eða norðan út á Melum í morgun ;)

Ljóta spýtan hans Guðjóns.
Mynd

Aircore Lalla vinar ;)
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3771
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Gaui »

Það finnast Loftkjarnar og Ljótar spýtur víðar en í Kef!
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Greinilega :)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Jæja, eftir að hafa klórað mér í hausnum í gærkvöldi og fylgt leiðbeiningunum með Weatronic út í ystu æsar hvað uppsetningu á samskipta rekli varðar þá ákvað ég bara að taka valtarann á þetta og þá small þetta(af einhverjum ástæðum vilja Weatronic menn ekki að leitað sé á netið við uppsetningu á reklinum en það var nauðsynlegt hjá mér).

Á fyrstu myndinni sjást upplýsingar um Weatronicið sem birtast þegar það er tengt, þeir gleymnu geta sett inn mynd af módelinu(hver ég?) ásamt lýsingu en einnig sést þarna hvaða tíðni og tíðnimótun er í notkun, hiti, staða rafhlaðna, staðsetning(ef þú ert með GPS) o.fl gagnlegt,

Á seinni myndinni sjást þessar 12 rásir sem ég get tekið við vinstra megin, efst eru svo útgangarnir. Glöggir aðilar sjá eflaust að ég hef víxlað rásum 2 og 7(hægra og vinstra hallastýri) en það er mikið þægilegra að tengja vinstri vænginn í servóútgang 2 heldur en 7 og svo öfugt fyrir hægri væng. Þá er þetta líka rétt í fjarstýringunni og engin hætta á ruglingi síðar meir. Þarna geta menn líka sett eigin nöfn á rásirnar, hópað servó saman, samstillt servó, stillt fail-safe, expo, kúrvur, o.fl. skemmtilegt. Þá væri líka hægt að forrita röð aðgerða sem nokkur servó geta framkvæmt en hægt er að stjórna allt að 8 servóum með einni rás.

Í staðin fyrir að stilla Weatronicið á rásina sem ég nota þá lét ég það skanna fjarstýringuna og þá segir það mér að útsending mín sé -0.85khz frá rásinni minni. Held að það sé innan velsæmismarka :)

Yfirlitsmyndin.
Mynd

Inngangar og útgangar.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir Sverrir »

Jæja 22:45 þann 4.júní þá var fyrsta flugið þreytt á Melgerðismelum. Ætlunin var að halda upp á 80 ára afmæli flugs til/frá Akureyri en það gengur bara betur næst ;)

Ekki mikið um flugið að segja annað en það að vélin er mjög skemmtileg og mótorinn skilar meir en nógu afli. Fór nánast aldrei upp fyrir hálfa gjöf. Fínasta veður, ca. 12 hnútar, skýjað og ca. 10°C hiti. Einhver óþolinmóður nennti ekki að setja hjólaskálarnar á fyrir flugið en þær koma ;)

Mynd

Mynd

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir kip »

Já sæll! Láta vita af svona atburðum á Melgerðismelum fyrirfram!! :D :D
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Passamynd
gudniv
Póstar: 94
Skráður: 20. Jan. 2008 02:47:04

Re: Nokkrar myndir af 28% Katana frá Krill

Póstur eftir gudniv »

ja..mikið helv... er vetralegt þarna fyrir norðan.... og til hamingju með vélina félagi.
Svara