Re: Lengi getur vont versnað!!!!!!!!!
Póstað: 11. Maí. 2009 17:45:29
Forvarnir og fræðsla eru mikilvægur hlekkur og líklegri til að bera meiri árangur en stífar reglur. Enda er gaui ekki að setja reglur heldur leggja til "þumalputtareglu" sem væri gott ef flugmódelmenn kæmu sér saman um.
Þetta er nefnilega erfitt að setja reglur eða bönn um, því þegar ég er staddur á ættaróðalinu, sveitabæ lengst upp í heiði í Suður-Þingeyjarsýslu, fljúgandi þvers og kruss á túnum og heimreiðum eins og versti redneck, þá er er banni við flugi utan valla vera erfitt að framfylgja. Viðmið samin af flugmódelfélögunum í einföldum upplýsingabækling væri hinsvegar er hægt að nota sem þumalputtareglur, þ.e. nota þegar það á við.
Þess vegna kemur þetta með forvarnir í formi fræðslu. Skipulögð fræðsla um hættur fjarstýrðum flygildum, hvort sem er agnarsmáum parkfiðrildum eða stórum bensínvélum.
Hvernig fer sú fræðsla fram og hvað er rökrétt niðurstaða?
Að mínu mati er niðurstaðan sú að
1. fá sem flesta til að ganga í flugmódelfélag. ( Ingþór uss!! )
2. að formenn félaganna fundi með sínu fólki og farið verði í vinnu að smíða sameiginlegar leiðbeiningar fyrir flug á hverskonar fjarstýrðum flygildum á Íslandi. úr þessu yrði gerður einfaldur lítill bæklingur, einblöðungur með helstu staðreyndum um hættur sem geta myndast þegar fjarstýrt flygildi er sett á loft. Hér er ég ekki að tala um sameiginlegar reglur, alls ekki reglur, þær fæla frá og eru til þess fallnar að fá uppreisnarseggi til að æsa sig. Nei fræðsla í formi upplýsingabæklings sem ná til byrjenda jafnt sem lengra komna er ég að tala um.
Upplýsingabæklingur sem bæði hvetur fólk til að ganga í flugmódelfélag, tekur á helstu öryggisþáttum og bendir á hættur við flug nálægt þéttbýli.
Ég sé fyrir mér lítinn myndskreyttan samanbortinn einblöðung í lit sem leikfangabúðir myndu selja með parkflyerunum alveg eins og módelbúðir myndu setja eintak af þessum bækling ofan í kassana með ARF módelum. Fyrir þessum bækling stæði landssamband flugmódelfélaga (sem ég held að sé verið að ræða að stofna).
Skipulögð fræðsla er betri forvörn en bann í þessu máli. Það er mitt álit