Síða 3 af 13
Re: CARF Eurosport
Póstað: 23. Nóv. 2010 14:13:06
eftir Björn G Leifsson
Framhaldsspuning... er ekki hugsunin með bremsum í svona þotum fyrst og fremst öryggi við ræsingu og akstur á og af braut, síður til að stöðva í lendingu?
Er ekki rétt skilið hjá mér að amríkanarnir setji bremsur sem kröfu einmitt af ofangreindum ástæðum?
Re: CARF Eurosport
Póstað: 23. Nóv. 2010 15:05:06
eftir Sverrir
Það eru öfgar í Ameríku í þessu eins og öðru. Þar þarf þotan að vera með bremsur og hún má ekki fljúga hraðar en 200 mph þó önnur flugmódel megi það. Megnið af reglunum í kringum þoturnar í Ameríku voru settar af aðilum með litla þekkingu á málefninu.
Lítil þörf á þessu við ræsingu, þotumótorar rjúka ekki í gang eins og bensínmótorar og yfirleitt stendur flugmaðurinn(og jafnvel aðstoðarmaður á slökkvitæki) við það í gangsetningu til að fylgjast með ferlinu.
Í akstri myndi ég frekar vilja fá þotu á lappirnar á mér heldur en flugmódel með spaða framan á!
Á Vipernum þá notaði ég þær fyrst og fremst til að halda módelinu fyrir flugtak þegar ég keyrði mótorinn upp, notaði þær sáralítið í akstri nema þá helst til að stöðva vélina í lokin og hefði alveg getað sleppt því með því að nota bensíngjöfina öðruvísi.
En með vélum sem þurfa að lenda á tiltölulega stuttum völlum, sérstaklega malbikuðum, þá getur verið full ástæða til að nota bremsurnar í lendingu.
Re: CARF Eurosport
Póstað: 23. Nóv. 2010 17:11:36
eftir Palmi
Þetta er nátturulega bara snilld! Í Realflight sim eru bremsur yfirleitt mixaðar við down elevator, er það ekki?
Re: CARF Eurosport
Póstað: 23. Nóv. 2010 17:45:40
eftir Sverrir
Jú það er ein leið, ég hef líka notað sliderinn á hliðinni á fjarstýringunni, þá er líka hægt að nota hann eins og handbremsu, fara með hann alla leið í botn en vera með pinnana frjálsa. Misjafnt hvað menn nota, sumir nota aðra hvora aðferðina, aðrir nota þær saman.
Boomerang XL er með bremsurnar á hæðarstýrinu og
Viper Jet var uppsett með þær eingöngu á slidernum.
Re: CARF Eurosport
Póstað: 23. Nóv. 2010 21:35:27
eftir Messarinn
Það er snilld að vera með bremsur til að stoppa módelið á bruni eftir malbiki, oft vantað svoleiðs á Melonum þegar það er logn. Er ekki hægt að útfæra eitthvað svona.. einhver
Re: CARF Eurosport
Póstað: 23. Nóv. 2010 22:32:02
eftir Sverrir
Þú gætir líka skorið bensínslöngu þunnt og smeygt henni á milli felgunnar og wheel collar og fengið þannig smá viðnám, munar ótrúlega miklu um það á malbikinu þó lítið sé.
Re: CARF Eurosport
Póstað: 19. Des. 2010 01:22:16
eftir Sverrir
Ég hef nefnt það áður en þegar maður vill styrkja stjórnteina þá er fljótlegt og þægilegt að sníða til carbon rör og líma á milli tengjanna. Það eykur styrkinn í stjórnteininum með lítilli þyngdaraukningu. Svo skellir maður herpihólk yfir herlegheitin til að gera þau snyrtilegri.
Þá eru vængirnir nánast klárir, aðeins á eftir að tengja servóvíra og loftslöngur yfir í skrokkinn.