RV-4 smíði

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Guðni
Póstar: 380
Skráður: 17. Jan. 2006 18:09:00

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Guðni »

Ég lenti í sömu pælingum með mína vél en á endanum pantaði ég mér svokallað Canopy Glue frá Tower Hobbyes..þetta lím verður glært þegar það þornar og sést ekki en þrælheldur, tær snilld,einnig setti ég hvítt einangrunarband á canopy kantinn,mér fannst það koma betur út.
Þú ættir að styrkja hjólahlífarnar,,,þær fóru fljótlega undan hjá mér..
Þetta ætlar að verða flott vél hjá þér,,gangi þér vel með rest..:)

Kv. Guðni Sig.
If it's working...don't fix it...
Passamynd
Gaui
Póstar: 3771
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Gaui »

Ég er sammála Þóri í sambandi við plast tengin í stýrin. Aldrei nota plast tengi í neitt nema inngjöf á mótor -- þau eru fín þar. Settu málm tengi í staðinn á stýrin. Þetta plast á eftir að brotna eða opnast. Þú mátt spyrja mig hvernig ég veit það :(

Til að líma glerið niður, þá er ekki mikið til af límum sem halda þessu til lengdar, en Hysol er þó undantekning. Ef þú setur Hysol og nokkrar skrúfur líka, þá verður þetta algerlega skothelt. Byrjaðu samt á því, áður en þú setur lím á glerið að sprauta Anti-Static hreynsi á það til að það sé ekki hlaðið rafmagni. Það er ótrúlegt hvað límið getur farið víða þegar rafeindirnar ýta því til og frá. Þú mátt líka spyrja mig hvernig þeg veit þetta ;)

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Pitts boy
Póstar: 140
Skráður: 22. Feb. 2006 13:49:32

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Pitts boy »

Takk fyrir svörin strákar.
Já ég ætla að skipta út plast clevis-unum út :/ á meira að segja fullt af stál clevis-um :)

já ég var einmitt búin að skoða Canopy Glue hjá Tower, en hafði ekki heirt um neinn sem hefur notað það. Fyrr en núna!! :)

Var einnig búin að vera að hugsa hvort væri hægt að nota undra efnið Hysol í þetta hef aldrei notað það en lesið mikið af lofræðum um það hér á Fréttavefnum.

Hvar fæ ég Hysol?
Kveðja.
Einar Rúnar Einarsson
Fluggarpur.
Selfossi
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir einarak »

[quote=Gaui]Ég er sammála Þóri í sambandi við plast tengin í stýrin. Aldrei nota plast tengi í neitt nema inngjöf á mótor -- þau eru fín þar. Settu málm tengi í staðinn á stýrin. Þetta plast á eftir að brotna eða opnast. Þú mátt spyrja mig hvernig ég veit það :(

Til að líma glerið niður, þá er ekki mikið til af límum sem halda þessu til lengdar, en Hysol er þó undantekning. Ef þú setur Hysol og nokkrar skrúfur líka, þá verður þetta algerlega skothelt. Byrjaðu samt á því, áður en þú setur lím á glerið að sprauta Anti-Static hreynsi á það til að það sé ekki hlaðið rafmagni. Það er ótrúlegt hvað límið getur farið víða þegar rafeindirnar ýta því til og frá. Þú mátt líka spyrja mig hvernig þeg veit þetta ;)

:cool:[/quote]
Hvernig veistu þetta allt?? :|

En hafið heyrt um Shoe Goo?
Shoe goo er snilldar lím sem við notum í fjarstýrðukappakstursbílahobbýinu til að líma saman, styrkja og gera við lexan (poly carbonate) body sem eru úr sama efni og margar canopyur. Eins og flestir vita þá er mjög erfitt að fá mörg lím til að festar við poly carbonate en shoo goo-ið nær fullkominni festu í það á örfaum sekúndum. Þetta lím er frekar þykkt og seigt, og lekur því ekki, er svo gott sem glært, og verður ekki grjót hart þegar það harðnar heldur helst það sveigjanlegt og brotnar ekki. Þess vegna erum við að nota það í rc bíla bodýin.
Shoe Goo fæst hjá smábílar.is : http://rchobby.is/search.php?orderby=po ... arch=Leita
Herna er einhvað um þetta: http://en.wikipedia.org/wiki/Shoe_Goo
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Sverrir »

[quote=Pitts boy]Hvar fæ ég Hysol?[/quote]
Hysol fæst í útlöndum, fljótlegast er að panta það Evrópumegin, t.d. hjá Al's Hobbies.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Sverrir][quote=Pitts boy]Hvar fæ ég Hysol?[/quote]
Hysol fæst í útlöndum, fljótlegast er að panta það Evrópumegin, t.d. hjá Al's Hobbies.[/quote]
Dásamlegt efni, keypti tvær túbur hjá Al, hér um árið og það nýtist vel.
Muna bara að maður verður að eignast handfangið ("byssuna") en það þarf maður bara að kaupa einu sinni.

Svo er gott að panta með nokkra blöndunarstúta fyrir stóru og djúpu límingarnar.

Það er faktískt furðu lítið sem verður eftir í þeim og ég nota bút af eldsneytisslöngu til að blása úr og nýta þessa hálfu teskeið eða svo sem er ístútnum.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Pitts boy
Póstar: 140
Skráður: 22. Feb. 2006 13:49:32

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Pitts boy »

[quote=Sverrir][quote=Pitts boy]Hvar fæ ég Hysol?[/quote]
Hysol fæst í útlöndum, fljótlegast er að panta það Evrópumegin, t.d. hjá Al's Hobbies.[/quote]
Jaaaháá.... það er skemtilegt :) og ég er einmitt á leið til "útlanda" :D er að spá í að taka lykkju á leið mína (Konan fattar það ekkert) og hitta alveg "óvart" á eina af búðunum hans Al :) hehe.... þá verður hún nú hissa "Nei Skooo er ekki bara mótelbúð þarna!!" Ég ætla líka að kíkja í módel búðina í Birmingham verð að veltast einn þar í 2-3 daga.
Það er greinilega algjört "must" að eiga svona túpu í lím hillunni góðu.
Kveðja.
Einar Rúnar Einarsson
Fluggarpur.
Selfossi
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11601
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Sverrir »

Mesta úrvalið í Milton Keynes ef þú verður þar nálægt.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Jónas J »

Alltaf gaman að regast á svona búið þegar maður fer erlendis.... he he he
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Passamynd
Gaui K
Póstar: 449
Skráður: 2. Maí. 2004 23:07:17

Re: RV-4 smíði

Póstur eftir Gaui K »

Nú líst mér vel á kallinn! ferðu ekki örugglega með stórustu ferðatöskuna :)
Svara