Síða 3 af 5

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 20. Jún. 2011 16:09:17
eftir Sverrir
Við félagarnir suður með sjó vorum komnir á lappir fyrir klukkan fimm á föstudeginum því ætlunin var að ná níuferðinni hjá Baldri til að nýta föstudaginn sem best. Það gekk allt eftir og vorum við komnir á flugvöllinn um eitt leytið.

Strax var hafist handa við að taka módelin úr kerrum og bílum og setja saman, aldrei þessu vant lá vindurinn ekki eftir firðinum heldur þvert á og var að breyta sér allan daginn. Gríðarlegt uppstreymi af söndunum í kring og algjör suðupottur enda var svifflugan dregin ansi oft á loft um helgina. Fyrsta þotuflugið á Vestfjörðum framkvæmdi svo Ingólfur með Intró seinna um daginn, Þegar leið á kvöldið rak Eiríkur, sérlegur meistarkokkur þeirra Patrómanna, módelmenn inn í kaffi, kakó og pönnukökur. Það voru svo þreyttir módelmenn sem keyrðu inn á Patró um 11 leytið og nánast beint í bólið.

Laugardagurinn rann svo upp heldur hvassari en föstudagurinn en það hjaðnaði um það leyti sem við komum út á völl og var vindurinn svipaður og á föstudeginum. Módelin voru dregin út úr flugstöðinni og út á hlað svo gestir og gangandi gætu skoðað þau á milli fluga. Mikið var flogið en sökum skilyrða kom það oft fyrir að menn lentu í aðra átt heldur en þeir tóku upp í. Það var þó ekki vandamál þar sem aðstoðarmennirnir fylgdust vel með flöggunum og létu sína menn vita. Mikið var um gesti og gangandi og höfðu þeir gaman af að sjá módel af öllum stærðum og gerðum framkvæma ótrúlegustu kúnstir. Allan daginn var svo hægt að kaupa grillaðar samlokur, kaffi, kakó og nammistangir gegn vægu gjaldi og var því vel tekið af viðstöddum.

Um kvöldmatarleytið var svo komin tími til að skunda inn á Patreksfjörð, skella sér í betri fötin og svo var haldið í grillveislu sem þeir Patreksfirðingar buðu módelmönnum í. Þar var heilt kar af drykkjarföngum, lamba- og svínakjöt ásamt frábæru meðlæti. Eftir matinn var svo smá sýning á vídeóum sem módelmönn höfðu tekið upp af vélunum sínum um daginn. Stuttu síðar var smalað út í hópmyndatöku en að því loknu var aðstaða Módelsmiðju Vestfjarða skoðuð. Eftir mikið skraf og bollaleggingar um fyrrverandi, núverandi og tilvonandi framtíðarverkefni skunduðu einhverjir niður í bæ að kynna sér skemmtanalíf þeirra Patreksfirðinga en aðrir fóru að hitta sængurfötin sín.

Sunnudagurinn gekk svo í garð með logni svo það var ekki eftir neinu að bíða heldur drifu menn sig út á völl til að ná nokkrum flugum fyrir heimferð. Mikið var flogið þangað til fórum að pakka saman um kaffileytið. Svo var Patreksfjörður kvaddur en vonandi verður leikurinn endurtekinn að ári og við getum aftur átt frábæra stund saman.

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 20. Jún. 2011 16:15:50
eftir Sverrir
Fleiri myndir má sjá hér.

Flugstöðin í öllu sínu veldi.
Mynd

Vel var flaggað.
Mynd

Nýji fáninn leit vel út.
Mynd

Brjálaðar pönnukökur!
Mynd

Margar hendur...
Mynd

Alltaf nóg að vera um í loftinu.
Mynd

Flugstöðin nýttist vel.
Mynd

„Litlu“ módelin í næturgeymslu.
Mynd

Stóru módelin.
Mynd

Janus sérlegur ljósmyndari þeirra Patreksfirðinga.
Mynd

Mynd

Flughermarnir vöktu mikla lukku hjá yngri kynslóðinni.
Mynd

Move along people nothing to see here...
Mynd

Eiríkur meistarakokkur.
Mynd

Nóg af drykkjarföngum!
Mynd

Eysteinn datt í það.
Mynd

Vídeósýning frá deginum.
Mynd

Módelsmiðja þeirra Patreksfirðinga.
Mynd

Hrafna-Flóki var með módel en ekki hrafna... Módel-Flækja?
Mynd

Myndarlegur hópur.
Mynd

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 20. Jún. 2011 16:38:37
eftir Guðjón
Það er gaman að sjá svona hópmynd af flugkomum, það ætti að vera fastur liður alltaf! :)

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 20. Jún. 2011 21:10:45
eftir Spitfire
Gat ekki annað en glott við tönn þegar ég sá þessa fyrirsögn á Dv.is :D

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 20. Jún. 2011 22:15:59
eftir einarak
[quote=Spitfire]Gat ekki annað en glott við tönn þegar ég sá þessa fyrirsögn á Dv.is :D[/quote]
Hahaha, ætli Hjörtur og Palli lumi á videoupptöku

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 20. Jún. 2011 22:28:43
eftir Sverrir
Fleiri myndir má sjá hér.

17.júní.
Mynd

Umhverfið var ekki leiðinlegt.
Mynd

Herra Rauðhaus lítur út um gluggann.
Mynd

Lancair í góðum gír.
Mynd

Allt að gerast.
Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Úbbbs!
Mynd

Mynd

Söfnunarbaukurinn
Mynd

Hún er svooooona stór!
Mynd

Mynd

Lágflug
Mynd

Vélar af öllum stærðum og gerðum.
Mynd

Mikið var um flugdrætti.
Mynd

Rússarnir voru á staðnum.
Mynd

Mynd

Nokkur hjól þörfnuðust viðgerða eftir viðureignina við slitlagið.
Mynd

Mynd

Nokkur flugvídeó voru tekin.
Mynd

Mynd

Mynd

Yngsta kynslóðin skemmti sér líka vel.
Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Sumir héngu bara á svæðinu! ;)
Mynd

Mynd

Mynd

Pálmi fékk „útþrá“ við að fljúga innan um hvíta sanda og bláan himinn.
Mynd

Mynd

Túrhestur frá Japan eða hvað...
Mynd

Intró tók fyrstu þotuflugin á Vestfjörðum. ;)
Mynd

Mynd

Gunni slappar af milli fluga.
Mynd

Extran hans Lalla tók flug.
Mynd

F-16 eftir smá lágflug.
Mynd

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 20. Jún. 2011 22:32:26
eftir Sverrir





Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 20. Jún. 2011 22:50:24
eftir lulli
Sem betur fer voru mikið af fábærum myndum teknar af Þessum stærsta flugmódel viðburði
Norð-Westur hornsins (það að ég viti)
Helgin verður lengi í minnum höfð, en með frábærum myndum ógleymanleg :)
Það er ljóst að margir lögðu hönd á plóg til að svo vel til tækist.
Takk allir/öll. kv.Lúlli.

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 21. Jún. 2011 13:34:54
eftir Sverrir
[quote=Sverrir]http://frettavefur.net/myndastraumur/[/quote]
49 myndir enduðu í straumnum um helgina, vonandi nýttist það þeim sem heima sátu.

Re: Patró International - Samantekt

Póstað: 21. Jún. 2011 16:44:18
eftir HjorturG