Flugkoma FMFA 2011

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir kip »

Þetta verður frábært allt saman, ég hlakka mest til að fá Silluvöfflur með rjóma nammmm.
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Passamynd
Gaui
Póstar: 3859
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Gaui »

[quote=Sverrir]Hvað með aðstöðu til að geyma módel?[/quote]
Undanfarin ár hefur Tommi parkerað flutningabílnum sínum hjá Hyrnunni og þar hefur verið hægt að geyma dálaglegan flota. Við erumlíka með flugskýli svifflugmanna í bakhöndinni og getum opnasð það ef í nauðinrnar rekur.

[quote=Sverrir]Hvað með veitingasölu?[/quote]
Veitingar verða í boði eins og fyrri ár fyrir lítinn pening. Við bökum vöfflur og hellum upp á kaffi fyrir gesti og gangandi. Um kvöldið verður síðan grillað og er miðaverði stillt í hóf. Einnig verður einhver vökvi til sölu með grillinu fyrir þá sem það vilja.

[quote=Sverrir]Hvað með gistingu?[/quote]
Þeir sem vilja tjalda á Melunum er frjálst að gera það og margir hafa einmitt gert það undanfarin ár. Tjaldbúar hafa þá aðstöðu í Flugstöð Þórunnar hyrnu. Þar eru líka tveir eða þrír beddar (held ég)mþar sem einhver getur kastað sér. Við mælum þó ekki með því.

[quote=Sverrir]Hvað með önnur skemmtileg „smáatriði?“[/quote]
Veðurspáin fyrir helgina kemur síðar, enda mjög erfitt að spá og sérstaklega um framtíðina.
:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Verður Silla ekki örugglega með hindberjasultu??
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3859
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Gaui »

Þú verður bara að spyrja hana (silla@grisara.is) ;)
:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Haraldur »

Jæja Akureyringar, eruð þið búnir að gera plan B?
Það er spáð hellirigningu um helgina, föstud. og langt fram á laugardag.
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11687
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Sverrir »

Held að þeir séu ekki einu sinni búnir að gera plan A! Mynd

Það þýðir ekkert að horfa á veðurspána ef menn ætla að mæta á annað borð, það hefur reynslan sýnt í gegnum árin! Plan B hjá mér er flugsafnið á laugardegi og svo flug á sunnudegi.

Svo er handverkshátíð í Hrafnagili og nóg um að vera inn á Akureyri, það verður ekki vandamál að slátra einum degi.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Flugvelapabbi
Póstar: 589
Skráður: 2. Des. 2008 16:53:06

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Flugvelapabbi »

Ekki gleyma FISKIDEGINUM a Dalvik
Passamynd
Ingþór
Póstar: 596
Skráður: 4. Feb. 2005 00:42:21

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Ingþór »

fiskur ojbara
- - Þegar þú flýgur á hvolfi er niður upp og upp kostar pening - -
- TT Raptor 90 - TT Raptor 50 - WestonUK MagnumR - SimProp Solution -
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11687
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Sverrir »

Og Jólaþorpinu og Holtaseli(ísgerð) og... listinn er langur.

Skal taka að mér að búa til plan B fyrir menn, aðeins 5.000 krónur og menn fá plan B sniðið að sínum þörfum! ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Haraldur
Póstar: 1409
Skráður: 20. Maí. 2005 15:19:44

Re: Flugkoma FMFA 2011

Póstur eftir Haraldur »

Plan B hjá mér er skýrnarveisla á Hvammstanga á laugardegim og svo flug á sunnudeginum.
Svara