Síða 3 af 8
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 9. Feb. 2015 19:00:02
eftir Agust
Ég rakst á drögin áðan í heild sinni á facebook síðu um flygildi.
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 9. Feb. 2015 19:12:04
eftir Tómas E
Ég verð margfaldur glæpamaður þegar ég flýg mini þyrlunni minni bakvið hús. Skiptir engu þótt ég fljúgi í minni hæð en húsin í kringum mig.
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 9. Feb. 2015 21:18:32
eftir einarak
Er einhver af okkar mönnum að ræða við samgöngustofu fyrir hönd flugmódelfélagana eða eru menn bara að ræða þetta hér?
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 9. Feb. 2015 21:27:12
eftir Sverrir
Stjórnir félaganna eru að fara yfir hlutina og munu svo væntanlega skila inn sameiginlega athugasemdum. Það eru engar viðræður í gangi við Samgöngustofu.
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 9. Feb. 2015 22:26:00
eftir Agust
Í skjalinu sem farið er að svífa um netheima er ein setning á sænsku:
"arbete som krävs för att hämma en kropp i rörelse". Sé hún Googluð birtist efst tilvísun í þessa síðu hjá Transport Styrelsen (sænska Samgöngustofan):
http://www.transportstyrelsen.se/sv/luf ... e-enrergi/, en þar er nákvæmlega þessi setning ásamt sömu formúlunni um hreyfiorku.
Þar á vinstri jaðar er tilvísun í sænsku reglurnar um "obemannade luftfartyg".
Sé þessi sænska reglugerð borin saman við þá sem er í umræðunni leynir skyldleikinn sér ekki.
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 9. Feb. 2015 22:44:52
eftir Agust
Ef sænska reglugerðin er skoðuð, þá sést greinilega að hún á fyrst og fremst við um fjarstýrt flug í atvinnuskyni og þess háttar.
Sjá
http://www.transportstyrelsen.se/sv/luf ... artyg-UAS/
Fyrst er þar kafli um reglur sem gilda um allt slíkt flug, þar með talið módelflug. Kaflinn heitir
Generella regler. (Sjá vefsíðuna).
Næsti kafli heitir
Tillstånd eða Leyfi. Í honum stendur:
Tillstånd från Transportstyrelsen krävs för obemannade luftfartyg som används eller är konstruerade för:
-utprovning eller forskning
-kommersiella ändamål, alltså all sorts verksamhet där ersättning erhålls för utfört arbete, uppdragsflygning och liknande, som inte är att betrakta som nöje eller rekreation
-att flygas utom synhåll för piloten.
-Obemannade luftfartyg som faller inom ovanstående punkter benämns av Transportstyrelsen som UAS och får en särskild registreringsbeteckning.
Það er að segja, það sem fellur undir það sem talið er upp í þessari stuttu upptalningu kallar Transportstyrelsen UAS, og það sem á eftir kemur á eingöngu við um UAS.
Þetta sem talið er upp er rannsóknir og prófanir, flug í atvinnuskyni þ.e. ekki tómstundaflug, og FPV flug.
Ath. Hefðbundið tómstundaflug fellur ekki undir skilgreiningu Transportstyrelse á UAS
Þetta þýðir með öðrum orðum, að
eingöngu kaflinn
Generella regler á einnig við um módelflug. Ekki þar sem fjallað er um UAS (Unmanned Aerial System).
Þar sem íslensku drögin virðast vera vera einhvers konar þýðing á sænsku reglugerðinni dreg ég þá ályktun að ætlunin hafi verið að hlíðstætt gilti í íslensku útgáfunni.
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 10. Feb. 2015 01:29:36
eftir Sverrir
[quote=Tómas E]Ég verð margfaldur glæpamaður þegar ég flýg mini þyrlunni minni bakvið hús. Skiptir engu þótt ég fljúgi í minni hæð en húsin í kringum mig.[/quote]
Ekki skv. þessari nýju reglugerð Tómas, nema þú ætlir að fljúga þar í atvinnuskyni, skoðaðu 16. grein en þar segir:
[quote=Úr 16. grein]Ekki er heimilt að fljúga loftari innan 150 m fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði. Þessi takmörkun gildir þó ekki um starfrækslu loftfara innan flugmódelfélaga eða um loftför í flokki IA og IB sem flogið er í tómstundaskyni.[/quote]
IA er upp að 1.5 kg og IB er upp að 7 kg, sjá 4. grein, þannig að á meðan að mini þyrlan þín er undir 7 kg þá ertu í góðum málum.
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 10. Feb. 2015 09:22:37
eftir Tómas E
[quote=Sverrir][quote=Tómas E]Ég verð margfaldur glæpamaður þegar ég flýg mini þyrlunni minni bakvið hús. Skiptir engu þótt ég fljúgi í minni hæð en húsin í kringum mig.[/quote]
Ekki skv. þessari nýju reglugerð Tómas, nema þú ætlir að fljúga þar í atvinnuskyni, skoðaðu 16. grein en þar segir:
[quote=Úr 16. grein]Ekki er heimilt að fljúga loftari innan 150 m fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði. Þessi takmörkun gildir þó ekki um starfrækslu loftfara innan flugmódelfélaga eða um loftför í flokki IA og IB sem flogið er í tómstundaskyni.[/quote]
IA er upp að 1.5 kg og IB er upp að 7 kg, sjá 4. grein, þannig að á meðan að mini þyrlan þín er undir 7 kg þá ertu í góðum málum.[/quote]
Já en ekki samkvæmt "150m frá vegum" og "1.5km frá flugvelli" reglunum, hér í eyjum verður ekki hægt að fljúga án þess að brjóta reglur/lög.
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 10. Feb. 2015 12:18:13
eftir Sverrir
Ah, já það er víst ekki mikið pláss þarna hjá þér, svo sem engin huggun í því en þú ert heldur ekki löglegur skv. núgildandi reglum. :/
En þú getur vonandi spjallað við þá sem ráða þarna og flogið með þeirra samþykki, það er stundum gott að búa þar sem allir „þekkja“ alla.
Re: Drög að reglugerð um ómönnuð loftför
Póstað: 10. Feb. 2015 17:04:21
eftir Tómas E
Já, reyndar