[quote=Árni H]Þetta var glæsilegt hjá ykkur og sérlega gaman að fylgjast með mótinu á netinu. Ég veit það úr öðrum greinum að það að fara til útlanda og keppa er gríðarlega gefandi og ég vil eiginlega meina að ein keppnisferð á borð við þessa sé jafngildi einhverra ára í reynslubankann - ef þið skiljið við hvað ég á [/quote]
Ekki spurning, reynslubankinn er heldur betur búinn að byggjast upp með keppnisferðum ársins!
Re: Heimsmeistaramótið í F3F 2016
Póstað: 13. Okt. 2016 22:17:23
eftir Sverrir
Áhugasamir geta kynnt sér gerðir svifflugna og útbúnað þeirra í þessum töflum.
Og tölfræði yfir svifflugurnar og framleiðendur þeirra.
Re: Heimsmeistaramótið í F3F 2016
Póstað: 14. Okt. 2016 20:58:38
eftir Elli Auto
Ég hef ekki kynnt mér FS4 eða 5, en af hverju eru vinsælust af keppendum Sverrir? Ég hef verið hrifin af Sinto vegna útfærslunar á hleðslunni í vængina. Þú hefur trúlega séð muninn á þeim? Kv. Elli
Re: Heimsmeistaramótið í F3F 2016
Póstað: 14. Okt. 2016 23:19:10
eftir Sverrir
Margir eru bæði með FS og Shinto, og eins aðrar vélar með, sjálfsagt einhver trúarbrögð í þessu eins og öðru.
Það skiptir litlu máli hvaða vélar verða fyrir valinu þegar farið er að horfa á þessar toppgræjur, þær eru tiltölulega léttar tómar og hægt að ballesta þær upp að 5 kg í flestum tilfellum. Hef svo sem enga sérstaka skoðun á ballest kerfinu í þeim, allt virkar þetta.
Eftir að hafa spjallað við nokkra flugmennina þá sögðu þeir flestir að FS4/4.3 væri góð í hægari aðstæðum þar sem hún er með rúmlega 3 metra væng og vinnur vel úr loftinu. FS5 er hönnuð fyrir hraða, með styttri væng og að sjá Thorsten fljúga henni í rokinu var bara eins og að horfa á endursýningu, mjög stöðugur flugmaður og ekki skrýtið að hann skyldi taka þetta.
Re: Heimsmeistaramótið í F3F 2016
Póstað: 20. Okt. 2016 00:00:54
eftir Sverrir
Klippa frá Svisslendingunum.
Re: Heimsmeistaramótið í F3F 2016
Póstað: 22. Des. 2016 01:07:32
eftir Sverrir
Smá grein um mótið í janúar 2017 hefti RCSD, einhverjar copy/paste villur hafa slæðst inn hjá ritstjóranum úti, sérstaklega í myndtextunum og liðastöðunni, en að öðru leyti mín grein. Takið sérstaklega eftir því hvað Pierre Rondel breytist í seinni hluta greinarinnar.
Re: Heimsmeistaramótið í F3F 2016
Póstað: 25. Des. 2016 23:45:28
eftir Sverrir
Smá myndasýning.
Re: Heimsmeistaramótið í F3F 2016
Póstað: 30. Des. 2016 11:21:48
eftir gudjonh
Takk Sverrir. Ágæt grein og myndasería. Gaman að þú skulir eiga fyrstu grein í blaðinu.