Móttakara loftnetsvír

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
Þórir T
Póstar: 837
Skráður: 17. Ágú. 2004 23:25:55

Re: Móttakara loftnetsvír

Póstur eftir Þórir T »

Sammála Ágústi með bjölluvírinn, nema að ég set dropa af sýrulími á endann á einangruninni og lími hann við endann á einangruninna á móttakaravírnum, nú svo er nú alltaf nál og tvinni einfaldast... og happadrýgst, nálin nógu þung til að detta í gegnum rörið og tvinninn nógu grannur til að geta sett lykkju utanum loftnetið... en það má alltaf gera einfalda hluti flókna... og öfugt....
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Móttakara loftnetsvír

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Þórir T]Sammála Ágústi með bjölluvírinn, nema að ég set dropa af sýrulími á endann á einangruninni og lími hann við endann á einangruninna á móttakaravírnum, nú svo er nú alltaf nál og tvinni einfaldast... og happadrýgst, nálin nógu þung til að detta í gegnum rörið og tvinninn nógu grannur til að geta sett lykkju utanum loftnetið... en það má alltaf gera einfalda hluti flókna... og öfugt....[/quote]
Nál og tvinni voru sko líka prófaðir en þetta er svona spes lausn og ég vildi ekki þurfa að hafa fjær-endann aðgengilegan í þessum stóra skrokk. Trikkið með kúluna og þrýstiloftsstútin svínvirkaði þannig að maður getur tekið vírinn úr og set tilbaka í að villd.
Ég held ég hafi prófað allar hugsanlegar feitir og smurninga en það stoppaði við að fara út í apótek eftir sleipiefni eins og það heitir á fínu máli.

Sprengivírinn à la Bjarnason virkar sennilega fínt en mér er einhvern veginn meinilla við að mixa loftnet... það er kannski óþarfa hræðsla.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Svara