Síða 23 af 60

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 23. Sep. 2012 17:41:05
eftir Árni H
Redneckaðferðin svínvirkaði - verst að Gaui missti seinustu leifarnar af heyrninni á vinstra eyra við þessar æfingar... :D

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 23. Sep. 2012 23:16:19
eftir Messarinn
HAHAHA Þetta kallar maður létt-geggjað vídeó :lol:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 25. Sep. 2012 11:03:03
eftir Patróni
hehehe þetta er með því betra

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 30. Sep. 2012 14:24:28
eftir Árni H
Sunnudagsmorgunn og smíðað er með gamla laginu:



Kv,
Árni H

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 30. Sep. 2012 15:11:02
eftir maggikri
Flott myndband Árni!. Var þetta das Grísará í gamla daga? eða gamla Grísará?

kv
MK

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 30. Sep. 2012 16:21:46
eftir Gaui
Nokkrar myndir frá síðustu viku:

Árni og Mummi prófa Marmite. Þeir segja það ekki alslæmt, en ég held að það sé Mjólkurkexið sem gerir það þolanlegt.

Mynd

Árni setur stélflötinn á Fokkerinn

Mynd

og fergir hann niður með smá stáli.

Mynd

Svo þarf að taka innan úr álplötunni sem erframan á vélarhlífinni. Fyrst eru götin gerð með ýmsum aðferðum: ýmislegt prófað, en allt virkaði jafn illa.

Mynd

Svo eru götin löguð til með nagara í Proxxon.

Mynd

Gríman komin og Mummi bærilega skelfdur.

Mynd

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 30. Sep. 2012 16:42:49
eftir Gaui
Örnámskeið í
Hvernig á að setja lok og panela á flugmódel

Mummi sýnir hér hvernig lok er útbúið, það sett á módel og síðan búnar til skrúfur á það þannig að það sýnist vera raunverulegt.

Fyrst þarf að kaupa ál-teip með bakpappír. Teipið sem er ekki með pappír er ekki heppilegt.

Mynd

Bútur af rétti stærð er klipptur af og síðan er lögun loksins teiknuð á. Athugið samt að verið er að teikna lokið eins og það er séð neðan frá, svo stundum þarf að hugsa smá áður en framkvæmdir hefjast.

Mynd

Nú má grípa beitt skæri og klippa formið út:

Mynd

Hér er formið komið og má setja það á sinn stað. (Athugið að þetta er venjulegur kennarasvipur á Árna. Svona er hann allan daginn uppí VMA.)

Mynd

Nú er bakpappírinn tekinn af og lokið límt á sinn stað. Athugið að límið er mjög sterkt og grípur fast, en þó er hægt að lyfta og staðsetja lokið aftur ef það er gert strax.

Mynd

Lokið er nuddað vel svo engar loftbólur sitji undir því. Hér má jafnvel nota brotinn plast spaða ef vill. Loftbólur eru meiri hætta við stóru lokin.

Mynd

Lítið rör er yddað inna frá og því síðan þrýst á lokið á réttum stöðum. Þá koma fram litlir hringir sem líta út eins og flútt-hnoð.

Mynd

Hnoðum má breyta í skrúfur með því að draga bakka á hnífsblaði innan í hringina.

Mynd

Og þá er hér komið lok með þrem skrúfum:

Mynd

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 30. Sep. 2012 17:43:29
eftir Patróni
Sniðugt:-)Þetta fer beint í minnisbankan.

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 7. Okt. 2012 15:33:17
eftir Gaui
Það er streðað á sunnudagsmorgnum í skúrnum að Grísará. Mummi er að setja misfellur á módelið sem hann var búinn að pússa eins slétt og ... eitthvað ...

Mynd

Við ætlum að búa til myndasögu um þetta sem hann er að gera þegar hann byrjar á vængnum.

Árni er enn að gera Fokker og nú var haann að skera út álplötu sem kemur oná skrokkinn framantil. Hann er afskaplega ánægður með þetta verk -- eða kannski er það bara nýja myndavélin sem er líka hægt að nota sem síma!

Mynd

:cool:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 8. Okt. 2012 08:37:00
eftir Jónas J
[quote=Gaui]Það er streðað á sunnudagsmorgnum í skúrnum að Grísará. Mummi er að setja misfellur á módelið sem hann var búinn að pússa eins slétt og ... eitthvað ...

Við ætlum að búa til myndasögu um þetta sem hann er að gera þegar hann byrjar á vængnum.

:cool:[/quote]

Líst vel á þetta:) Bíð spenntur :D